Tólf krónur af hverri leigubílaferð renna til Bleiku slaufunnar

Leigu­bílar Hreyfils/Bæj­ar­leiða skarta bleikum höttum í októ­ber, en upp­á­tækið er liður í Bleiku slauf­unni; árveknis- og fjár­öfl­un­ar­átaki Krabba­meins­fé­lags Íslands. Er þetta sjötta árið í röð sem bif­reiða­stöðin tekur þátt í átak­inu með þessum hætti. Auk þess að selja Bleiku slauf­una, renna tólf krónur af hverri pant­aðri ferð með "bleikum" leigu­bílum til átaks­ins.

Árið 2010 runnu tíu krónur af hverri pant­aðri ferð með bleikum leigu­bíl til Bleiku slauf­unnar, en það ár nam styrkur Hreyfils/Bæj­ar­leiða til átaks­ins 1,1 milljón króna, en auk þess seldu leigu­bíl­stjór­arnir yfir 4.400 bleikar slaufur.

Tíu króna upp­hæðin hélst óbreytt árið eftir, en þá hlaut Krabba­meins­fé­lagið 1,2 millj­ónir í styrk frá bif­reiða­stöð­inni vegna pant­aðra ferða með bleikum leigu­bílum. Það ár seldu auk þess leigu­bíl­stjór­arnir yfir 3.800 slaufur.

Styrkupp­hæð Hreyfils/Bæj­ar­leiða til Bleiku Slauf­unnar árið 2012 hljóð­aði upp á 1,4 millj­ónir króna, en þá runnu tólf krónur af hverri pant­aðri ferð með bleikum leigu­bíl til fjár­öfl­un­ar­átaks­ins. Þá seld­ust jafn­framt 3.800 slaufur í leigu­bíl­unum.

Í fyrra runnu sömu­leiðis tólf krónur af hverri pant­aðri ferð með bleikum bíl til Bleiku slauf­unnar, og styrkupp­hæðin var sú sama og árið áður, eða 1,4 millj­ónir króna. Í fyrra seldu bíl­stjórar bleiku leigu­bíl­anna um 3.300 slaufur.

Miðað við tólf krónu upp­hæð­ina, sem Bleika slaufan fær í sinn hlut vegna hverrar pant­aðrar ferðar með bleikum leigu­bíl á þessu ári, þurfa bleikir leigu­bílar Hreyfils/Bæj­ar­leiða að fara hátt í 117 þús­und pant­aðar ferðir til að safna álíka upp­hæð fyrir Bleiku slauf­una og í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár