iPhone-eigendur eru ríkari en Android-eigendur

Eigendur iPhone-snjall­síma frá Apple eru 40 pró­sent rík­ari en eig­endur snjall­síma sem hafa Android-stýri­kerfið. Þetta kemur fram í rann­sókn á app­notkun í Banda­ríkj­unum sem fram­kvæmd var af comScore og birt­ist á dög­unum.

Aftur á móti eru mun fleiri með Android-síma en iPhone. Munar þar á 16,4 millj­ónum símum en vegna þess hversu marg­skiptur síma­mark­að­ur­inn er fyrir Android-stýri­kerfið, þá er iPhone lang vin­sælasta tækið. iPhone-eig­endur virð­ast líka vera ánægð­ari með græj­una sína því á hverjum mán­uði nota þeir snjall­tækið sitt níu klukku­tímum lengur að jafn­aði en Android-not­endur.

Yngra fólkið sækir heldur í Apple-snjall­tæki en þeir sem eldri eru, 43 pró­sent iPhone-not­enda eru á aldr­inum 18 til 34 ára miðað við að sami ald­urs­hópur skipar 39 pró­sent af Android-not­endum. Þegar kemur að spjald­tölvunum þá eru 57 pró­sent iPad-eig­enda undir 45 ára aldri, miðað við 53 pró­sent þeirra sem eiga Android-spjald­tölvu.

Notendur appa, brotið niður eftir aldri


[visualizer id="9644"]

Samfélagsmiðlar og leikir vinsælastir


Þegar kemur að notkun appa í snjall­tækjum meðal fólks í Banda­ríkj­unum þá eru sam­fé­lags­miðl­arnir lang vin­sæl­astir. Raunar dekka þeir fjórð­ung alls þess tíma sem fólk eyðir í snjall­tæk­inu. Leikir og útvarps­öpp, auk sam­fé­lags­miðla, fylla svo nærri helm­ing alls tím­ans sem eytt er í tækj­unum.

Þessar nið­ur­stöður renna stoðum undir kenn­ingar sér­fræð­inga um að snjall­tæki séu mun frekar notuð til dægradvalar og sam­skipta en borð­tölvur. Í smá­forrita­búð­unum má finna svip­aðar nið­ur­stöður. Fólk virð­ist nota útvarp, kort og sam­skipta­for­rit mun frekar á snjall­tækjum. Á borð­tölvum er fólk hneigð­ara að leit­ar­for­ritum og frétta­veitum.

Vinsælustu öppin í Bandaríkjunum


[visualizer id="9635"]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár