Pæling dagsins: Ríkið fjárfesti í sérfræðilæknum

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Formaður félags­ins Einstök börn, Guð­mundur Björgvin Gylfason, lýsti í sam­tali við RÚV miklum áhyggjum vegna þess að þjón­usta frá heil­brigð­is­kerf­inu við lang­veika og þá sem þurfa mikla aðstoð hefur versnað á und­an­förnum árum, vegna nið­ur­skurðar meðal ann­ars. Þá er fyr­ir­sjá­an­legt að mik­ill vandi skap­ist vegna þess að það vantar sér­fræði­mennt­aða lækna. Þá vantar fjár­magn, 1,5 millj­arða króna, til þess að geta sett hlut­ina í ásætt­an­legt horf. Þessi staða er grafal­var­leg, og eitt­hvað sem rit­stjórn Kjarnans hefur heyrt tölu­vert af und­an­farin miss­eri. Vonandi for­gangs­raða stjórn­mála­menn rétt við fjár­lögin, og setja fé í þennan mála­flokk sem hér á undan er lýst, fremur en gælu­verk­efni. En hvað varðar lækn­anna og skort á þeim, þá er ekki svo auð­velt að sjá hvað er hægt að gera. Eitt atriði mætti skoða; það er að nýta náms­lána­kerfið til þess að ýta undir komu lækna til Íslands. Ein­fald­lega að sér­fræði­mennt­aðir læknar fái veru­legan styrk frá rík­inu, í formi nið­ur­felldra lána eða vaxta af þeim t.d., fyrir að koma heim. Kostn­að­ur­inn af því að gera ekk­ert er gríð­ar­legur, en þetta gæti mögu­lega unnið gegn enn meiri erf­ið­leikum.

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár