Tíu útgerðarfyrirtæki högnuðust um 46 milljarða á fimm árum

Tíu íslensk útgerð­ar­fyr­ir­tæki högn­uð­ust um tæpa 46 millj­arða króna frá árinu 2009, eftir skatta afskriftir og vaxta­gjöld. Þetta kemur fram í upp­lýs­ingum sem Creditinfo tók saman að beiðni Kjarnans. Sex fyr­ir­tækj­anna eiga enn eftir að skila árs­reikn­ingum fyrir árið 2013 og því er við­búið að talan eigi eftir að hækka enn frekar.

Sam­an­lagðar bók­færðar heild­ar­eignir félag­anna nema rúmum 123 millj­örðum króna, og eigið fé þeirra, það er eignir að frá­dregnum skuldum, hljóðar upp á röska 76 millj­arða króna.

Félögin sem um ræðir eru Brim hf., Gjögur hf., FISK-Seafood ehf., Samherji Ísland ehf., Bergur-Huginn ehf., Stálskip ehf., Úgerð­ar­fé­lag Akur­eyr­inga ehf., Útgerð­ar­fé­lagið Vigur ehf., KG Fisk­verkun ehf., og Stígandi ehf.

Fimm útgerðarfyrirtæki sem högnuðust mest


Úgerð­ar­fé­lagið Brim hf., sem er í eigu for­stjór­ans Guð­mundar Krist­jáns­sonar, skil­aði tæp­lega 12,5 millj­arða króna hagn­aði á árunum 2009 til 2012. Félagið á enn eftir að skila árs­reikn­ingi fyrir árið 2013, en í lok árs 2012 námu eignir þess tæpum 21,5 millj­örðum króna, og eigið fé fyr­ir­tæk­is­ins var þá rúmir ell­efu millj­arðar króna.

Hagnaður útgerð­ar­fé­lags­ins Gjögurs á Grenivík á árunum 2009 til 2012 hljóð­aði upp á rúma 7,3 millj­arða króna, en fyr­ir­tækið á enn eftir að skila inn árs­reikn­ingi fyrir árið 2013. Félagið átti eignir upp á röska 19 millj­arða króna í árs­lok 2012, og tæpa 5,7 millj­arða króna í eigið fé.

FISK-Seafood á Sauð­ár­króki hagn­að­ist um tæpa sjö millj­arða króna á árunum 2009 til 2013. Heild­ar­eignir félags­ins námu tæpum 17 millj­örðum í árs­lok 2013, en félagið átti þá tæpa 15,5 millj­arða króna í eigið fé.

Útgerð­ar­fyr­ir­tækið Samherji Ísland ehf. á Akureyri, sem er í eigu frænd­anna Krist­jáns Vil­helms­sonar og Þor­steins Más Bald­vins­sonar, hefur ekki skilað inn árs­reikn­ingi fyrir árið 2013. Á árunum 2009 til 2012 hagn­að­ist útgerð­ar­fyr­ir­tækið um ríf­lega 4,3 millj­arða króna. Heild­ar­eignir fyr­ir­tæk­is­ins í lok árs 2012 námu tæpum 31,2 millj­örðum króna, og félagið átti þá röska 9,6 millj­arða eigið fé. Þó til­greint félag hafi ekki enn skilað inn árs­reikn­ingi fyrir árið 2013 má geta þess að hagn­aður Samherja sam­stæð­unnar á síð­asta ári nam 22 millj­örðum króna.

Bergur-Huginn ehf. í Vest­manna­eyjum, sem Síld­ar­vinnslan í Nes­kaup­stað reyndi að kaupa í ágúst­mán­uði árið 2012 af félagi í eigu Magnúsar Krist­ins­sonar, hagn­að­ist um rúma þrjá millj­arða króna árin 2009 til 2013. Heild­ar­eignir félags­ins hljóð­uðu upp á rúman 4,1 millj­arð króna í árs­lok 2013, og þá átti Bergur-Huginn ríf­lega 1,2 millj­arða króna í eigin fé.

Samtals högn­uð­ust ofan­greind félög um að minnsta kosti ríf­lega 34 millj­arða króna á síð­ustu fimm árum. Eins og áður segir eiga þrjú útgerð­ar­fyr­ir­tækj­anna enn eftir að skila árs­reikn­ingum fyrir árið 2013 og því er talan ekki tæm­andi.

Athygli er vakin á því að ein­ungis er um að ræða upp­lýs­ingar um fyr­ir­tæki sem sinna útgerð á smá­bátum eða fiski­skipum á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár