Stjórnendur Samskipa og Eimskipa kærðir til Sérstaks saksóknara

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur kært ell­efu starfs­menn og stjórn­endur Samskipa og Eimskipa til emb­ættis Sérstaks sak­sókn­ara fyrir meint brot á sam­keppn­is­lögum. Grunur leikur á að félögin hafi stundað ólög­legt sam­ráð um ára­bil, en félögin sinna um tveimur þriðju allra farm­flutn­inga til og frá land­inu.

Kæran byggir á gögnum sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið hald­lagði í hús­leitum sem það fram­kvæmdi hjá fyr­ir­tækj­unum tveimur og dótt­ur­fé­lögum þeirra í sept­em­ber­mán­uði á síð­asta ári og svo aftur í sumar.

Á meðal þeirra kærðu eru Gylfi Sig­fús­son, for­stjóri Eimskipa, Pálmar Óli Magn­ús­son, for­stjóri Samskipa og Ásbjörn Gíslason, fram­kvæmda­stjóri hjá erlendu dótt­ur­fé­lagi Samskipa.

Þetta kom fram í kvöld­fréttum RÚV, en Kast­ljósið fjallar ítar­lega um málið í kvöld.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár