Ríkisstarfsmenn fá 10.800 krónur á dag fyrir mat á ferðalögum

Samkvæmt upp­lýs­ingum á heima­síðu Fjármála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins fá rík­is­starfs­menn 10.800 krónur í dag­pen­inga til greiðslu fæð­is­kostn­aðar á ferða­lögum sínum inn­an­lands. Skilyrði fyrir greiðsl­unni er að starfs­maður sé fjar­ver­andi lengur en í tíu tíma. Sé ferða­lagið styttra, minnst sex tímar, hljóðar upp­hæðin upp á 5.400 krónur.

Í fyr­ir­liggj­andi virð­is­auka­skatts­frum­varpi Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, er gert ráð fyrir að hver mál­tíð kosti fjög­urra manna fjöl­skyldu 248 krónur á mann. Samkvæmt neyslukönnun Hag­stof­unnar, sem fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið segir að hafi legið til grund­vallar sínum útreikn­ingum, er miðað við að það kosti 745 krónur á dag að fæða hvern ein­stak­ling í fjög­urra manna fjöl­skyldu.

Ferða­kostn­að­ar­nefnd ákvarðar dag­pen­inga til greiðslu gisti- og fæð­is­kostn­aðar rík­is­starfs­manna á ferða­lögum inn­an­lands á vegum rík­is­ins. Sé tekið mið af neyslu­við­mið­inu sem birt­ist í virð­is­auka­skatts­frum­varp­inu myndu 10.800 krónur, sem rík­is­starf­se­menn fá til að greiða fyrir mat á ferða­lögum sínum duga fyrir 43 mál­tíðum á dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár