Fagnaðarlátunum ætlar aldrei að linna

Íslenska karla­lands­liðið í knatt­spyrnu vann fræk­inn sigur á hol­lenska lands­lið­inu í fót­bolta á Laug­ar­dals­vell­inum í kvöld, með tveimur mörkum gegn engu. Hol­lend­ing­arnir, sem unnu til brons­verð­launa á síð­asta HM í fót­bolta sem fram fór í Brasilíu sælla minn­inga, sáu aldrei til sólar.

Frá fyrstu mín­útu mátti sjá hvar sjálfs­traustið skein úr and­litum íslensku lands­liðs­mann­anna, enda komnir með blóð á tenn­urnar eftir sigra í fyrstu tveimur leikjum liðs­ins í A-riðli for­keppni Evr­ópu­meist­ara­móts­ins í fót­bolta sem fram fer í Frakk­landi árið 2016.

Smitandi sjálfstraust


Kapp Íslend­ing­anna kom Hol­lend­ing­unum í opna skjöldu á kyrru og köldu kvöldi í Laug­ar­dalnum, en þeir eyddu drjúgum hluta í upp­hafi leiks í að laga vett­ling­ana sína og kvarta undan því að leik­bolt­inn væri linur. En þó veðrið hafi verið með kyrrum kjörum, er ekki það sama að segja um kapp­klædda stuðn­ings­menn Íslands sem studdu dug­lega við bakið á sínum mönnum úr stúkunni, undir dyggri hand­leiðslu Tólf­unnar - stuðn­ings­sveit íslenska lands­liðs­ins.

Eins og í und­an­förnum leikjum ein­kennd­ist leikur Íslands af yfir­vegun og sjálfs­trausti. Leikmenn liðs­ins eru í alvöru farnir að trúa því að þeir geti unnið nán­ast hvaða lið sem er, og íslenska þjóðin virð­ist sömu­leiðis vera komin á þá skoðun. Ekki að ósekju myndi ein­hver segja.

Gylfi neitar að hætta að skora með landsliðinu


Fyrsta mark leiks­ins leit dags­ins ljós á tíundu mín­útu, þegar Gylfi Þór Sig­urðs­son skor­aði úr víta­spyrnu sem dæmd var eftir að Birkir Bjarna­son var felldur í víta­teig þeirra app­el­sínu­gulu. Lands­liðið fagn­aði mark­inu ákaft eins og stuðn­ings­menn­irnir, en um leið og flautað var aftur til leiks varð ein­beit­ingin áber­andi á ný, eins og kveikt hefði verið á rofa.

Hol­lend­ingar virt­ust ráða­lausir, enda hefur and­leg brot­lend­ing þeirra vafa­lítið verið hörð eftir að hafa fengið mark á sig svo snemma leiks. Sókn­ar­leikur þeirra var bit­laus, miðju­menn þeirra vart sýni­legir fyrir utan harð­jaxl­inn Nigel de Jong, prímus­mót­or­inn á miðju vall­ar­ins. Wesley Sneijder hefði eig­in­lega betur sómað sér upp í stúku, þar sem hann hefði verið rukk­aður fyrir aðgangs­mið­ann, því hann gerði lítið annað en að glápa á það sem fyrir augu bar í fyrri hálf­leiknum.

Stórstjörnur sem ekki skinu


Hinn knái Arjen Robben fékk baulkór­inn á sig í hvert skipti sem hann snerti bolt­ann, og komst lítið áleiðis gegn Ara Frey Skúla­syni og Robin van Persie, stór­stjarna Manchester United, fékk úr litlu að moða frammi. Hann fékk reyndar eitt dauða­færi í fyrri hálf­leik þegar hann komst einn inn fyrir vörn Íslands, en var svo étinn af Hannesi Þór Hall­dórs­syni lands­liðs­mark­verði, sem var frá­bær og öruggur í öllum sínum aðgerðum í leiknum.

Fram­herj­arnir Kolbeinn Sig­þórs­son og Jón Daði Böðv­ars­son voru vesen holdi klæddir fyrir varn­ar­menn hol­lenska liðs­ins, Aron Einar Gunn­ars­son lands­liðs­fyr­ir­liði sá um skít­verkin og át hverja send­ingu á fætur annarri á miðj­unni eins og Pac-man.

Það ætl­aði allt um koll að keyra í hjarta höf­uð­borg­ar­innar þegar Ísland komst í 2-0 á 42 mín­útu. Þar var að verki Gylfi Þór Sig­urðs­son, sem skor­aði með föstu skoti upp í þak­netið, en bolt­inn barst til hans eftir krafs fyrir framan mark Hol­lend­inga eftir góða horn­spyrnu Emils Hall­freðs­sonar.

Íslenska liðið varðist sem einn maður


Hol­lend­ingar komu beitt­ari til leiks í síð­ari hálf­leik. Trukk­ur­inn Klaas Jan Hun­telaar kom þá inn á fyrir áður­nefndan Wesley Sneijder, sem komst þá í lang­þráða heita sturtu. Bak­verð­inum Ara Frey Skúla­syni var sömu­leiðis skipt út af sökum meiðsla, og inn á kom Birkir Már Sæv­ars­son.

Hol­lend­ingar beittu helst háum og löngum send­ingum í síð­ari hálf­leik, enda hafa þeir vafa­laust verið komnir á þá skoðun að það viðr­aði vel til loft­árása. Ragnar Sig­urðs­son og Kári Árnason voru sem turnar í hjarta varn­ar­innar og kipptu sér lítið upp við loft­varnaflaut­urnar. Ragnar og Kári hafa verið frá­bærir í und­an­förnum leikjum íslenska lands­liðs­ins og í kvöld varð engin breyt­ing á. Bak­vörð­ur­inn Theódór Elmar Bjarna­son var líka frá­bær í leiknum, en hann hefur ræki­lega eignað sér stöð­una í íslenska lands­lið­inu með frammi­stöðu sinni í síð­ustu leikjum lands­liðs­ins.

Íslenska liðið lá til baka og varð­ist sem einn maður, en hvorki lands­liðs­menn­irnir né kaldir stuðn­ings­menn­irnir trúðu því í eina sek­úndu að liðið myndi tapa þessum leik. Þannig er stemmn­ingin orðin í kringum íslenska lands­liðið í dag. Liðið sem sýndi takta í síð­ustu und­ankeppni stór­móts í knatt­spyrnu, er núna með dans­gólfið í helj­ar­g­reipum og dansar takt­fastan breik­dans. Sóknir hol­lenska liðs­ins voru mátt­lausar og íslenska liðið gerði sig marg­sinnis lík­legt til að bæta við marki í vel útfærðum skynd­i­sóknum. Jón Daði Böðv­ars­son komst næst því að skora þegar hann tók á rás frá miðju vall­ar­ins, tróð sér á milli varn­ar­manna með bolt­ann inn í víta­teig og sendi bolt­ann hár­fínt fram­hjá fjær­stöng­inni. Áhorf­endur risu svo úr sætum og hylltu unga sókn­ar­mann­inn þegar honum var skipt útaf fyrir Rúrik Gíslason, þegar nokkrar mín­útur lifðu leiks.

Stúkan söng og syngur enn


Emil Hall­freðs­son átti skín­andi leik á vinsti vængnum, sér­stak­lega í fyrri hálf­leik, og Birkir Bjarna­son var óþreyt­andi á hægri kant­inum. Að öðrum ólöst­uðum var töfra­mað­ur­inn á miðj­unni, Gylfi Þór Sig­urðs­son, klár­lega maður leiks­ins. Honum leið­ist án bolt­ans, og þegar hann fær hann ger­ist nán­ast und­an­tekn­inga­laust eitt­hvað skemmti­legt.

Þegar dóm­ar­inn flaut­aði til leiksloka brut­ust út mikil fagn­að­ar­læti á Laug­ar­dals­velli.

https://vimeo.com/108840659

Stuðn­ings­menn hol­lenska lands­liðs­ins, sem keyptu marga dýra bjóra bjart­sýnir fyrir leik, laum­uðu sér út af vell­inum á meðan stúkan söng og hyllti íslenska lands­liðið. Ísland trónir sem fyrr á toppi A-rið­ils for­keppni Evr­ópu­meist­ara­móts­ins í fót­bolta, með níu stig eða fullt hús stiga og marka­töl­una 8-0. Stúkan á Laug­ar­dals­velli söng í leiks­lok og syngur enn. Fagn­að­ar­lát­unum ætlar aldrei að linna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár