Útgerðin hefur hagnast um áttatíu milljarða króna frá árinu 2009

Útgerðir smá­báta og fiski­skipa á Íslandi hafa hagn­ast um hátt í átta­tíu millj­arða króna á síð­ast­liðnum fimm árum, eða frá árinu 2009. Þetta kemur fram í upp­lýs­ingum sem Creditinfo tók saman að beiðni Kjarnans, en töl­urnar eru unnar upp úr árs­reikn­ingum útgerð­ar­fyr­ir­tækj­anna. Enn eiga þó nokkur hund­ruð útgerð­ar­fyr­ir­tæki, eftir að skila árs­reikn­ingum fyrir árið 2013 og því er við­búið að talan eigi eftir að hækka enn frekar. Frestur til að skila inn árs­reikn­ingum rann út 31. ágúst síð­ast­lið­inn.

"Ókeypis" makrílveiðar hafa sitt að segja


Árið 2009 nam hagn­aður útgerð­ar­innar röskum 4,5 millj­örðum króna miðað við fyr­ir­liggj­andi árseikn­inga þeirra ríf­lega eitt þús­und útgerð­ar­fyr­ir­tækja sem skil­uðu árs­reikn­ingum það ár. Árið á eftir nam hagn­aður umræddra félaga rúmum fjórtán millj­örðum króna, en árið 2011 tók hagn­að­ur­inn mikið stökk upp á við og nam rúm­lega 28,5 millj­örðum króna. Stökkið má að miklu leyti þakka mak­ríl­veiðum Íslend­inga, sem útgerðin sinnir end­ur­gjalds­laust, þ.e. hefur ekki greitt krónu fyrir afla­heim­ild­irnar.

Hagnaður útgerð­ar­fyr­ir­tækj­anna nam tæpum 16 millj­örðum króna árið 2012, og í fyrra hljóð­aði hagn­aður fyr­ir­tækj­anna upp á röska 15 millj­arða króna. Sem fyrr er athygli vakin á því að hátt í helm­ingur útgerð­ar­fyr­ir­tækj­anna sem um ræðir á enn eftir að skila árs­reikn­ingum fyrir árið 2013, eða um fimm hund­ruð fyr­ir­tæki.

Heildareignir og eigið fé hækkar samhliða


Á umræddu tíma­bili, það er frá árinu 2009, hafa heild­ar­eignir félag­anna sem um ræðir sömu­leiðis hækkað. Heild­ar­eignir eru eignir að frá­dregnum skuldum. Í lok árs 2009 námu heild­ar­eignir útgerð­ar­fyr­ir­tækj­anna ríf­lega 198 millj­örðum króna, tæpum 204 millj­örðum árið á eftir, tæpum 222 millj­örðum árið 2011, röskum 203 millj­örðum árið 2012 og miðað við fyr­ir­liggj­andi árs­reikn­inga sem þegar hafa borist, námu eignir útgerð­ar­fyr­ir­tækj­anna tæpum 88 millj­örðum króna í fyrra.

Til marks um hversu skuld­settur geir­inn var við banka­hrunið, var eigið fé útgerð­ar­fé­lag­anna nei­kvætt um ríf­lega 22,7 millj­arða í árs­lok 2009. Tveimur árum síðar var eigið fé félag­anna komið ríf­lega 31 millj­arð króna réttum megin við núllið, en árið 2012 nam eigið fé útgerð­ar­fyr­ir­tækj­anna tæpum 37 millj­örðum króna. Samkvæmt árs­reikn­ingum þeirra útgerð­ar­fyr­ir­tækja sem skilað hafa inn árs­reikn­ingi fyrir árið í fyrra, nam eigið fé þeirra í lok árs, tæpum 19 millj­örðum króna.

Veiðigjöld lækka um 1,8 milljarða á milli ára


Til sam­an­burðar má nefna að miðað við fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varp Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra, er gert ráð fyrir tæpum 44,9 millj­örðum króna til rekst­urs Land­spít­al­ans á næsta ári. Í sama fjár­laga­frum­varpi lækka veiði­gjöld á útgerð­ina um 1,8 millj­arða króna á næsta ári. Þá er áætlað að þau verði um átta millj­arðar króna, en gjaldið skilar um 9,8 millj­örðum króna í rík­is­kass­ann á þessu ári.

Rík­is­stjórnin réðst í breyt­ingar á veiði­leyfagjöldum sum­arið 2013 með það fyrir augum að lækka það, þrátt fyrir mylj­andi hagnað í grein­inni. Ákvörð­unin var gagn­rýnd og Jón Steins­son, dós­ent í hag­fræði við Columbia-háskóla í New York, hefur sagt að engin hag­fræði­leg rök séu fyrir lækk­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár