Krefjast afstöðu formanns FRÍ í maraþonmáli

Lind Freyju­dóttir, sam­býl­is­kona hlauparans Péturs Sturlu Bjarna­sonar, hefur sent Einari Vil­hjálms­syni, nýkjörnum for­manni Frjáls­í­þrótta­sam­ands Íslands, bréf þar sem hún krefst afstöðu hans í mara­þon­mál­inu svo­kall­aða. Lind kærði, í umboði sam­býl­is­manns síns, Arnar Pét­urs­son Íslands­meist­ara karla í mara­þoni og sak­aði hann um svindl í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu, sem fram fór þann 23. ágúst síð­ast­lið­inn. Kjarninn hefur fyrr­greind bréf undir höndum.

Kæru vísað frá vegna formgalla


Áfrýj­un­ar­dóm­stóll Íþrótta- og ólymp­íu­sam­bands Íslands (ÍSÍ) tók ekki afstöðu til kæru­at­riða í mara­þon­mál­inu á dög­unum. Í upp­haf­legri kæru máls­ins, sem send var yfir­dóm­nefnd Reykja­vík­ur­mara­þons­ins eftir að hlaup­inu lauk, var Arnar sak­aður um að hafa notið lið­sinnis tveggja hjól­reiða­manna í hlaup­inu, sem hafi verið brot á reglum mara­þons­ins, og því bæri að ógilda þátt­töku­rétt hans í mara­þon­inu og svipta hann titl­inum.

Í úrskurði yfir­dóm­nefndar var við­ur­kennt að reglur hlaups­ins hafi verið brotnar, Arnari hafi vissu­lega verið fylgt eftir af hjól­reiða­mönnum um þrjá fjórðu hluta hlaupa­leið­ar­inna, en kæru máls­ins var vísað frá þar sem ekki þótti sannað að umræddir hjól­reiða­menn hefðu aðstoðað Arnar í hlaup­inu. Auk þess hefði sigur hans verið það afger­andi í hlaup­inu að fylgd hjól­reiða­mann­anna hefði ekki haft áhrif á úrslit hlaups­ins. Arnar var rúmum níu mín­útum á undan næsta Íslend­ing í hlaup­inu, sem var Pétur Sturla Bjarna­son.

Lind kærði nið­ur­stöðu yfir­dóm­nefndar til dóm­stóls ÍSÍ, sem stað­festi síðar nið­ur­stöðu dóm­nefnd­ar­innar og vís­aði mál­inu frá. Nið­ur­stöðu dóm­stóls ÍSÍ var þá áfrýjað til áfrýj­un­ar­dóm­stóls ÍSÍ. Þar var nið­ur­staðan sú að ekki hafi verið rétt í upp­hafi að kæra nið­ur­stöðu yfir­dóm­nefndar Reykja­vík­ur­mara­þons­ins til dóm­stóls ÍSÍ, þar sem Reykja­vík­ur­mara­þonið, eða Íþrótta­banda­lag Reykja­víkur (ÍBR) sem ann­ast fram­kvæmd hlaups­ins og yfir­dóm­nefndin heyrir undir, hafi ekki verið aðili að mál­inu. Kærendum virð­ist því hafa orðið á mis­tök í mál­inu með því að skjóta ekki upp­runa­legu kæru máls­ins til dóm­stóls ÍSÍ. Málinu var því vísað frá enn á ný, núna sökum form­galla.

Upp­haf­legir kærendur hyggj­ast ekki kæra meint svindl Arnars Pét­urs­sonar til dóm­stóls ÍSÍ og er mál­inu því lokið af þeirra hálfu.

Vísa í siðareglur FRÍ


Í fyrr­greindu bréfi sem Lind Freyju­dóttir sendi for­manni FRÍ er vakin athygli for­manns­ins á siða­reglum frjáls­í­þrótta­sam­bands­ins. Í bréf­inu er vísað til fjög­urra greina siða­regln­anna þar sem kveðið er á um að íþrótta­fólk virði alltaf reglur og venjur varð­andi heið­ar­leika (Fair Play) í íþróttum, fari ætíð að keppn­is­reglum, virði tíma­mörk og önnur atriði varð­andi fram­kvæmd íþrótta­móta, sýni öðrum iðk­endum virð­ingu, jafn sam­herum sem keppi­nautum, og sé ávallt til fyr­ir­myndar varð­andi fram­komu, jafnt utan vallar sem innan, og hafi hug­fast að það sé fyr­ir­mynd yngri iðk­enda.

Í nið­ur­lagi bréfs­ins til for­manns FRÍ segir: "Spurning mín er ein­föld: Hver er afstaða þín í þessu máli - er þetta fram­koma sem FRÍ stendur fyrir?"

Bréfið var sent Einari Vil­hjálms­syni for­manni FRÍ 8. októ­ber síð­ast­lið­inn, en hann hefur ekki enn svarað bréf­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár