Pæling dagsins: Hver verður dómur sögunnar í fangelsismálum?

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Það getur stundum verið hjálp­legt að taka sér heim­speki­lega stöðu í fram­tíð­inni. Hvernig verður staðan eftir 15 eða 20 ár? Hvernig verður sam­tími okkar dæmdur þá? Þegar fang­els­is­mál eru ann­ars vegar, er full ástæða til þess að velta því fyrir sér hvernig sagan muni dæma okkar sam­tíma þegar kemur að yfir­fullum fang­elsum af fólki sem glímir við veik­indi, svo sem fíkni­sjúk­dóma og and­lega kvilla ýmis konar, en fær ekki bót meina sinna. Viðurlög við lög­brotum eru sjálf­sögð og eðli­legur hluti rétt­ar­rík­is­ins. En það er umhugs­un­ar­efni hvort það geti verið, að stór hluti fanga eigi ekki heima í fang­elsum eins og þau eru sett upp í dag, eins og rann­sóknir hafa raunar sýnt. Það er að nauð­syn­legt sé að skipu­leggja fang­elsi þannig að veikt fólk sé með­höndlað eins og það sé veikt, en ekki bara vont fólk. Þó það sé vissu­lega líka til, að því marki að sú skil­grein­ing haldi vatni. Sjáum til hvað fram­tíðin ber í skauti sér hvað þessi mál varðar. Það er ekki víst að dómur sög­unnar verði stöðu mála eins og þau eru núna í hag.

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár