Pæling dagsins: Hvað á Íbúðalánasjóður eiginlega að gera?

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Sér­fræð­ingur sem rit­stjórn Kjarnans ræddi við á dög­unum velti því fyrir sér hvað stjórn­völd ætl­uðu sér að gera með Íbúða­lána­sjóð. Eins og staða mála væri núna, þá væri óljóst hvað stjórn­völd vildu að sjóð­ur­inn ætti að gera, fyrir utan að fjár­hags­staða sjóðs­ins er afleit. Lítil eft­ir­spurn hefur verið eftir lánum hjá sjóðnum að und­an­förnu og sú harða stefna sem stjórn­völd hafa gegn verð­tryggðum lánum, einkum Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, þýddi í reynd að stjórn­völd væru á móti vör­unum sem sjóð­ur­inn væri að bjóða fólki. Þetta væru frekar „ein­kenni­leg skila­boð“ eins og hann orð­aði það. Nú er búið að hækka hámarks­lán sjóðs­ins úr 20 millj­ónum í 24 millj­ónir. Þetta breytir ekki öllu máli, en gerir sjóð­inn þó að val­kosti hjá þeim sem eru að kaupa sér sína fyrstu eign, einna helst. Fyrir utan tíðar manna­breyt­ingar í stjórn þá er líka margt annað sem skilur mann eftir í lausu lofti, þegar sjóð­ur­inn er ann­ars vegar. Svo virð­ist sem eng­inn viti til hvers sjóð­ur­inn sé í dag, og hvað hann eigi að gera í fram­tíð­inni.

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár