„Ofurölvi“ ökumaður olli banaslysi

Rann­sókn­ar­nefnd sam­gönguslysa hefur gefið út skýrslu sína um slys við Akra­fjalls­veg 6. apríl í fyrra þar sem sautján ára gömul stúlka, Lovísa Hrund Svav­ars­dóttir, lést. Meg­in­nið­ur­stöður rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar eru þær að öku­maður BMW jeppa­bif­reiðar hafi ekið yfir á rangan veg­ar­helm­ing í veg fyrir litla fólks­bif­reið með þeim afleið­ingum að Lovísa lést. Öku­mað­ur­inn var ofurölvi, mæld­ist með um 2,7 pró­sent magn áfengis í blóði. „Ein­stak­lingur undir svo miklum áfeng­is­á­hrifum er rænu­lít­ill og hefur skerta stjórn á hreyf­ingum auk ann­arra þátta sem skerða öku­hæfni. Líkur á að missa með­vit­und sökum ölv­unar eru tals­verðar í þessu ástandi,“ segir í skýrsl­unni.

Árekst­ur­inn var harður, en Lovísa Hrund ók Toyota Yaris bif­reið. Þyngd­ar­munur bif­reið­anna var mik­ill, BMW-jeppa­bif­reiðin ríf­lega tvö tonn en Yaris bif­reiðin tæp­lega eitt tonn.

Lovísa Hrund var í ör­ygg­is­belti. Niður­stöður áfeng­is- og lyfja­rann­sókn­ar sýndu að hún var ekki und­ir áhrif­um áfeng­is eða lyfja er slysið átti sér stað, sam­kvæmt skýrsl­unni.

Slysið átti sér stað 2:19 að nóttu til og var bleyta á vett­vangi. Í skýrsl­unni kemur fram að öku­maður BMW bif­reið­ar­innar hafi ekki veitt Yaris bif­reið­inni athygli né áttað sig á því að hann var kom­inn yfir á rangan veg­ar­helm­ing.

Hér­aðs­dóm­ur Vest­ur­lands dæmdi öku­mann jepp­ans, konu á fimm­tugs­aldri, í 12 mán­aða fang­elsi, þar af níu mán­uði skil­orðs­bundið, fyr­ir mann­dráp af gá­leysi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár