Rauðar tölur í kauphöllinni - Össur lækkar um 6 prósent

Gengi bréfa í Össuri hefur lækkað mikið í við­skiptum dags­ins í Kauphöll Íslands, eða um 5,94 pró­sent. Við­skiptin með bréf félags­ins eru hins vegar umfangs­lítil, en heild­ar­veltan í við­skipt­unum er um fjórar millj­ónir króna. Þá hefur gengi bréfa í Icelandair lækkað um 1,12 pró­sent , Reginn um 0,66 pró­sent, TM um 1,24 pró­sent, N1 um 0,52 pró­sent og Sjóvá um 0,25 pró­sent. Þrjú félög hafa hækkað í verði. Gengi bréfa í Vodafone um 1,05 pró­sent, VÍS um 0,24 pró­sent og Hagar um 0,33 pró­sent.

Gengi bréfa í Högum hefur hækkað gríð­ar­lega frá því að það var skráð á markað, fyrst félaga eftir hrunið. Skrán­ing­ar­gengi félags­ins var 13,5 en gengi bréfa félags­ins í dag er 45,15.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár