Pæling dagsins: Alvarleg staða blasti við Emil

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Karla­lands­lið Íslands í fót­bolta mætir Lett­landi í dag, klukkan 18:45, í öðrum leik rið­ils­ins í und­ankeppni EM. Fyrsti leik­ur­inn vannst 3-0 gegn Tyrkjum, von­andi mun ganga vel áfram. Einn leik­manna liðs­ins, Emil Hall­freðs­son, hefur verið í við­tölum upp á síðkastið við fjöl­miðla. Hann missti föður sinn nýlega úr krabba­meini og hefur sýnt hversu heil­steyptur og magn­aður full­trúi íslenskra íþrótta á erlendri grundu hann er. Hann er fjöl­skyldu­maður sem lætur verkin tala á vell­inum, er í topp­bar­áttu í Sería A með Hellas Verona á Ítalíu, og hefur bætt sig mikið sem leik­maður. Í áhuga­verðu við­tali við vef­síð­una Fotbolta.net ræddi hann um heil­brigð­is­kerfið, og alvar­lega stöðu sem blasti við honum, og sagði þar meðal ann­ars. „Þetta hefur fengið mann til að hugsa um hvernig heil­brigð­is­kerfið er á Íslandi. Pabbi þurfti að breyta um lyf sem fóru mjög illa í hann - lyf sem síðar kom í ljós að virk­uðu ekki á meinið. Þegar hann var alveg að fram kom­inn hafði hann sam­band við lækn­inn sinn, sem reynd­ist vera í fríi. Þá komumst við að því að að það voru ein­ungis tveir krabba­meins­læknar á Land­spít­al­anum og því gat eng­inn sinn honum í tvo mán­uði. Maður hefur aldrei pælt í svona hlutum og hversu skert þjón­ustan er á Íslandi. Ef pabbi hefði haft betri eft­ir­fylgni tel ég að honum hafi getað liðið betur, verið minna kval­inn, síð­asta einn og hálfan mán­uð­inn eða svo.“ Sann­ar­lega umhugs­un­ar­efni.

Frétta­póstur Kjarnans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár