Vífilfell fagnar sigri í dómsmáli gegn ríkinu

Hæsti­réttur hefur stað­fest fyrri dóm Hér­aðs­dóms Reykja­víkur um að íslenska ríkið skuli greiða Víf­il­felli til baka 80 millj­ónir sem fyr­ir­tækið hafði greitt í stjórn­valds­sekt vegna meintra brota á sam­keppn­is­lögum. Dómur þess efnis féll í dag.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið og íslenska ríkið þurfa einnig að greiða fyr­ir­tæk­inu 1,5 millj­ónir í máls­kostnað fyrir Hæsta­rétti, sam­kvæmt dómnum.

Forsaga máls­ins er sú, að með ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins árið 2011 var Víf­il­fell talið hafa á árunum 2005 til 2008 brotið gegn 11. gr. sam­keppn­islaga nr. 44/2005 og 54. gr. samn­ings um Evrópska efna­hags­svæðið, með gerð fjölda við­skipta­samn­inga við end­ur­selj­endur á gos­drykkjum, og var Víf­il­felli gerð sekt upp á 260 millj­ónir. Áfrýj­un­ar­nefnd sam­keppn­is­mála lækk­aði svo sekt­ina í 80 millj­ónir.

Í til­kynn­ingu frá Víf­il­felli kemur fram að fyr­ir­tækið fagni dómnum og hlakki til þess að geta tekið þátt í sam­keppni á jafn­rétt­is­grund­velli.

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hafði áður snúið við úrskurði áfrýj­un­ar­nefndar sam­keppn­is­mála þess efnis að Víf­il­fell hafi brotið gegn sam­keppn­is­lögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár