Samson-reiturinn kominn í hendur nýrra eigenda

Einka­hluta­fé­lagið Blávík hefur keypt Samson-reit­inn svo­kall­aða af Landey ehf., dótt­ur­fyr­ir­tæki Arion banka. Blávík eign­að­ist reit­inn við kaup á einka­hluta­fé­lag­inu Rauðsvík sem var í eigu Land­eyjar. Reit­ur­inn sem um ræðir markast af Bar­ón­stíg, Laugaveg, Vitastíg og Skúla­götu. Kaup­verðið fæst ekki upp­gefið að svo stöddu.

Eins og nafnið gefur til kynna dregur Samson-reit­ur­inn nafn sitt af eign­ar­halds­fé­lag­inu Samson Properties, sem var áður í eigu Björg­ólfs­feðga, en félagið er gjald­þrota í dag. Reit­ur­inn afmark­að­ist af Hverf­is­götu í suðri. Samson hafði uppi háleitar og metn­að­ar­fullar fyr­ir­ætl­anir um upp­bygg­ingu á reitnum árin fyrir hrun. Félagið gerði til að mynda samn­inga við Reykja­vík­ur­borg árið 2007 um upp­bygg­ingu Lista­há­skól­ans við Laugaveg, stúd­enta­í­búða við Lind­ar­götu og upp­bygg­ingu og útfærslu á nýjum versl­un­ar­kjarna á Lands­banka-Bar­óns­reit. Sá reitur er í eigu GAMMA í dag.

[caption id="attachment_9042" align="alignnone" width="640"] Lauga­vegur 71 er á meðal fast­eigna á reitnum, en þar eru skrif­stofur Kjarnans til húsa.[/caption]

Einka­hluta­fé­lagið Blávík var stofnað á þessu ári, en Þor­valdur H. Giss­ur­ar­son, fram­kvæmda­stjóri ÞG verk­taka, og Ingi Guð­jóns­son, annar stofn­enda Lyfju og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, fara fyrir félag­inu og hópi fjár­festa. Þor­valdur og Ingi eiga sæti í stjórn félags­ins ásamt Vigni Ósk­ars­syni, fram­kvæmda­stjóra Fisk­mark­aðs Grinda­víkur, en hann er jafn­framt hlut­hafi í félag­inu.

Rauðsvík hyggst þróa reit­inn í sam­vinnu við Reykja­vík­ur­borg á næstu mán­uðum, með það að mark­miði að byggja þar litlar mið­bæj­ar­í­búðir. Því er alls óvíst hvað verður um fast­eign­irnar sem fyrir eru á reitnum. Gengið var frá kaup­unum í síð­ustu viku, en þá voru um níu­tíu leigu­samn­ingar í gildi á reitnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár