Þráspurðu um bréf milli kauphallar og FME

Verj­endur ákærðu í máli emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara gegn fyrr­ver­andi starfs­mönnum lands­bank­ans, Sig­ur­jóni Árnasyni, fv. for­stjóra, Ívar Guð­jóns­syni, fyrr­ver­andi for­stöðu­manni eigin við­skipta, og Júlíusi Heið­ars­syni og Sindra Sveins­syni, starfs­mönnum eigin við­skipta, þrá­spurðu Magnús Kristinn Ásgeirs­son, lög­fræð­ing Kaup­hallar Íslands, út í bréfa­skrif milli Kaup­hallar Íslands og Fjár­mála­eft­ir­lits­ins í morgun, ásamt fleiri atriðum. Spurn­ing­arnar snéru ekki síst að því hvernig eft­ir­liti með við­skiptum í kaup­höll­inni væri háttað, hvernig við­skipti færu fram og hver væri mein­ingin að baki texta sem finna mátti í bréfum milli Kaup­hallar Íslands og Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, þar sem gefið var í skyn að um meinta mark­aðs­mis­notkun hefði verið að ræða.

Kom fram í máli Helga Sig­urðs­sonar hrl., lög­manns Júlíusar, að þetta væri lyk­il­vitni í mál­inu, og því þyrfti hann að spyrja hann tölu­vert út í málið. Samkvæmt upp­haf­legri áætlun var áformað að hann þyrfti að vera 10 mín­útur í vitna­stúku en raunin varð tæp­lega 90.

All­ir eru þeir ákærðir fyr­ir mark­aðs­mis­notk­un á tíma­bil­inu 1. nóv­em­ber 2007 til 3. októ­ber 2008 og eru þeir sak­aðir um að hafa hand­stýrt verð­mynd­un hluta­bréfa í Lands­bank­an­um og með því blekkt „fjár­festa, kröfu­hafa, stjórn­völd og sam­fé­lagið í heild,“ eins og það er orðað í ákæru.

Grunsemdir í Kauphöllinni


Á um­ræddu tíma­bili keyptu eig­in fjár­fest­ing­ar 2.325.395.153 hluti af þeim 4.801.255.966 hlut­um í Lands­bank­an­um sem við­skipti voru með í sjálf­virk­um pör­un­ar­við­skipt­um, eða 48,4% af heild­ar­velt­unni. Í ljósi þess hvernig ákæran er orðuð, og að hverju hún bein­ist, skiptir skipu­lag við­skipta og eft­ir­lits í Kauphöll Íslands miklu máli fyrir málið.

Lögmenn Júlíusar og Ívars, þeir Helgi Sig­urðs­son hrl. og Jóhannes Rúnar Jóhanns­son hrl., spurðu Magnús Kristin út í það hvort það hefði verið eitt­hvað óeðli­legt við það hvernig við­skipti Lands­bank­ans með eigin bréf hefðu verið og hvort eft­ir­lits­kerfið í Kaup­höll­inni hér á landi væri með eitt­hvað öðrum hætti en á öðrum alþjóð­legum mörk­uðum. Magnús Kristinn sagði eft­ir­litið vera í sam­ræmi við það sem þekkt­ist ann­ars staðar og að kerfið væri það sama og kaup­hallir á Norð­ur­lönd­unum not­uðu.

Í aðdrag­anda hruns­ins sagði Magnús að kaup­höllin hefði orðið vör við „mjög ákveðin“ við­skipti á kaup­hlið­inni frá eigin við­skiptum Lands­bank­ans, og bönk­unum almennt, og var sér­stak­lega nefnd dag­setn­ingin 3. októ­ber 2008 í því sam­bandi. Í lok dags hækk­aði gengi bréfa Lands­bank­ans um 4,2 pró­sent. Magnús átti í kjöl­farið á þessu sam­skipti við ákærða Júlíus, og spurði hvort þarna væru eigin við­skipti að beita sér á mark­aðnum. Júlíus játti því og sagði kauptæki­færi vera á mark­aðnum.

„Óeðlileg“?


Í vitn­is­burði sínum sagði Magnús að þetta hefði verið „óeðli­leg“ hegðun miðað við það sem gengur og ger­ist á mark­aðnum. Þá voru bréfa­skipti milli Kaup­hall­ar­innar og FME einnig til umræðu þegar Magnús Kristinn var í vitna­stúku. Var meðal ann­ars spurt út í mein­ingar í texta þar sem fjallað var um mögu­lega mark­aðs­mis­notkun á mark­aðnum. Sagðist Magnús Kristinn ekk­ert geta full­yrt um hvort mark­aðs­mis­notkun ætti sér stað eða ekki, það væri ekki hans að dæma um það. Hins vegar þyrfti að horfa til „allra þátta“ þegar meint mark­aðs­mis­notkun væri ann­ars vegar, þar á meðal væri fjár­mögn­unin að baki við­skipt­unum, t.d. hvort bank­arnir sjálfir hafi verið að fjár­magna kaup og stæðu að baki við­skipt­unum þannig, með bréfin ein að veði. Það væri eitt­hvað sem Kaup­höllin hefði ekki upp­lýs­ingar um, en eftir á að hyggja hefði það mögu­lega verið stórt vanda­mál á mark­aðnum.

Markaðsmisnotkun?


Ákærðu neita alfarið sök í mál­inu og hefur Sigurjón Árnason raunar sagt að það séu mikil „von­brigði“ hvernig málið sé sett fram. Fyrst og fremst vegna þess í að því séu „öllu snúið á haus“. Ekket óeðli­legt hafi átt sér stað, og eng­inn hafi verið vilj­andi að brjóta gegn lögum, að því er fram kom í umfjöllun mbl.is um vitn­is­burð hans. Sigurjón var sýkn­aður í Ímon-mál­inu svo­kall­aða 5. júní 2014, en umfang þess máls var þó ekki nándar nærri eins og mikið og það sem nú er í gangi. Lögmaður Sig­ur­jóns er Sigurður G. Guð­jóns­son hrl.

Vitna­leiðslur hófust form­lega í dag, en um 50 manns eru á vitna­lista ákæru­valds­ins. Þar á meðal eru Björg­ólfs­feðgar, Björgólfur Guð­munds­son og sonur hans Björgólfur Thor, sem voru stærstu eig­endur bank­ans fyrir hrun hans í gegnum félag þeirra Samson.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár