Bretar þrýsta á um að fá Icesave-peningana

Bresk stjórn­völd hafa að und­an­förnu þrýst á um að Seðla­banki Íslands og fjár­mála­ráðu­neytið veiti und­an­þágu frá fjár­magns­höftum fyrir útgreiðslu gjald­eyris úr slita­búi gamla Lands­bank­ans (LBI) til for­gangs­kröfu­hafa. Breski inn­stæðu­trygg­inga­sjóð­ur­inn er stærsti for­gangs­kröfu­hafi LBI, sem rekja má til Icesave inn­láns­reikn­ing­ana, og á eftir að fá greidda um 400 millj­arða úr búinu.

Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag. Fram kemur að Andrea Leadsdom, und­ir­ráð­herra fyrir efn­hags­mál í breska fjár­mála­ráðu­neyt­inu, hefur á síð­ustu vikum átt í sam­skiptum við Bjarna Bene­dikts­son, fjá­mála- og efna­hags­ráð­herra, vegna máls­ins.

Fram kom í máli Más Guð­munds­sonar, seðla­banka­stjóra, á kynn­ing­ar­fundi vegna útgáfu Fjár­mála­stöð­ug­leika í gær, að unnið væri að því þessa dag­ana að skoða greiðslu­jafn­að­ar­vanda þjóð­ar­búss­ins heild­stætt, og á þeim grunni yrðu teknar ákvarð­anir mál­efni sem snúa að slita­búum föllnu bank­anna. Þar á meðal er ákvörðun um hvort fall­ist verður á beiðni Lands­bank­ans um að lengja í skulda­bréfi gagn­vart LBI.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár