Pæling dagsins: Af hverju „lifði þetta allt af“ vinstri stjórnina?

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Gunnar Smári Egilsson, fjöl­miðla­maður og bar­áttu­maður fyrir því að Ísland verði hluti af Noregi, er oft skemmti­legur á Facebook og lætur gamm­inn geysa um hin ýmsu mál. Hann velti því upp í gær hvað vinstri stjórnin hefði eig­in­lega verið að gera í þessum málum sem nú er að vera gagn­rýna sem mest, mál­efni MS ekki síst. Orðrétt sagði Gunnar Smári: „Nú veit ég að við eigum að vera rosa­lega reið rík­is­stjórn­inni fyrir spill­ing­una og klíku­skap­inn í kringum upp­töku­heim­ilið í Skaga­firði, einka­fyr­ir­tækið Rann­sóknir og grein­ingu og ekki síst MS og allt það skíta­mix - en hvernig stóð á því að þetta lifði allt af vinstri stjórn­ina sem fólkið kaus 2009 til að hreinsa til á Íslandi?“. Þetta er ágætis pæl­ing hjá Gunnari Smára. Stjórn­mála­menn­irnir eru mikil ólík­inda­tól og umræðan í kringum það sem þeir eru að segja og gera á það til að fara í hring, og enda þannig að eng­inn áttar sig almenni­lega á rót vand­ans.

Hægt er að skrá sig á póst­lista Kjarnans hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár