SVÞ krefjast þess að innflutningsbann verði afnumið tafarlaust

Eft­ir­lits­stofnun EFTA (ESA) telur að núgild­andi lög­gjöf á Íslandi, varð­andi inn­flutn­ing á fersku kjöti frá öðrum EES-ríkjum, brjóti í bága við EES-samn­ing­inn. Þetta kemur fram í nýju áliti ESA, sem stofn­unin hefur sent íslenskum stjórn­völdum þar sem stað­fest er samn­ings­brot íslenska rík­is­ins gagn­vart skuld­bind­ingum EES-samn­ings­ins. Stofn­unin getur vísað mál­inu til EFTA-dóm­stóls­ins grípi stjórn­völd ekki til við­eig­andi ráð­staf­ana. Málið á rætur sínar að rekja til kvört­unar Samtaka versl­unar og þjón­ustu (SVÞ) sem sam­tökin sendu ESA í byrjun árs 2011.

Lárus M.K. Ólafsson, lög­maður SVÞ, segir sam­tökin fagna áliti ESA. "Nið­ur­staða stofn­un­ar­innar er í fullu sam­ræmi við þær ábend­ingar og rök­stuðn­ing sem fram kemur í erindi SVÞ til ESA í des­em­ber 2011. SVÞ telja að það hafi aldrei verið vafi á því að bann þetta felr í sér við­skipta­hindr­anir í skiln­ingi EES-samn­ings­ins sem og mis­munun hvað varðar inn­flutn­ing á fersku kjöti. Þá hafa SVÞ bent á að íslenska ríkið hafi ekki lagt fram vís­inda­leg gögn sem styðji svo viða­mikið inn­grip í fjór­frelsi EES-samn­ings­ins."

Íslensk lög­gjöf felur í sér inn­flutn­ings­tak­mark­anir á fersku kjöti, unnu sem óunnu, kældu sem frosnu, sem og inn­mat og slát­ur­úr­gang, hvort sem um ræðir svína-, nauta-, lamba-, geita- eða alí­fugla­kjöt eða kjöt af villtum dýrum. Inn­flytj­endur verða sam­kvæmt gild­andi lögum að sækja um leyfi og leggja fram marg­vís­leg gögn til Mat­væla­stofn­unar.

Töldu SVÞ bann þetta ganga gegn ákvæðum EES-samn­ings­ins varð­andi frjálsa vöru­flutn­inga. Þessu til við­bótar feli eft­ir­lits­kerfi hér á landi með inn­flutn­ingi á kjöti í sér landamæra­eft­ir­lit sem sé ekki í sam­ræmi við lög­gjöf EES-samn­ings­ins.

Lögin verði afnumin tafarlaust með lagabreytingu


"SVÞ eiga enn eftir að kynna sér álitið í heild sinni en hins vegar er krafa sam­tak­anna í þessu máli óbreytt, að bann þetta sem komið á var á sínum tíma með lögum verði afnumið með laga­breyt­ingu taf­ar­laust. Óbreytt ástand felur í sér veru­legt óhag­ræði og fjár­hags­legt tjón fyrir inn­flytj­endur, verslun sem og neyt­endur í land­inu. Hins vegar ber að geta þess að eitt aðild­ar­fyr­ir­tækja SVÞ hefur nú þegar stefnt íslenska rík­inu fyrir hér­aðs­dóm Reykja­víkur vegna þessa inn­flutn­ings­bann og verður málið tekið fyrir 14. októ­ber næst­kom­andi. Nið­ur­staða ESA er því kær­komin við­bót við fyr­ir­liggj­andi rök­semdir í því máli," segir lög­fræð­ingur Samtaka versl­unar og þjón­ustu.

SVÞ telja eðli­legt að íslenska ríkið grípi nú til við­eig­andi ráð­staf­ana til afnema umrætt bann til að tryggja eft­ir­fylgni með skuld­bind­ingum EES samn­ings­ins. Að öðrum kosti liggi fyrir að rík­inu verði stefnt af hálfu ESA fyrir EFTA dóm­stól­inn þar sem ríkið hafi nú verið staðið að samn­ings­broti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár