ESA: Innflutningsbann á fersku kjöti brýtur gegn EES-samningnum

Eft­ir­lits­stofnun EFTA (ESA) hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að núgild­andi lög­gjöf á Íslandi, varð­andi inn­flutn­ing á fersku kjöti frá öðrum EES-ríkjum, brjóti í bága við EES-samn­ing­inn. Þetta kemur fram í til­kynnningu frá Samtökum versl­unar og þjón­ustu (SVÞ), sem send var fjöl­miðlum í dag.

SVÞ sendu þann 6. des­em­ber 2011 kvörtun á ESA vegna inn­leið­ingar íslenskra stjórn­valda á reglu­gerð ESB um almennar meg­in­reglur og kröfur sam­kvæmt lögum um mat­væli, um stofnun Mat­væla­ör­ygg­is­stofn­unar Evrópu og um máls­með­ferð vegna öryggis mat­væla.

Íslensk lög­gjöf felur í sér inn­flutn­ings­tak­mark­anir á fersku kjöti, unnu sem óunnu, kældu sem frosnu, sem og inn­mat og slát­ur­úr­gang, hvort sem um ræðir svína-, nauta-, lamba-, geita- eða alí­fugla­kjöt eða kjöt af villtum dýrum. Inn­flytj­endur verða sam­kvæmt gild­andi lögum að sækja um leyfi og leggja fram marg­vís­leg gögn til Mat­væla­stofn­unar.

Töldu SVÞ bann þetta ganga gegn ákvæðum EES-samn­ings­ins varð­andi frjálsa vöru­flutn­inga. Þessu til við­bótar feli eft­ir­lits­kerfi hér á landi með inn­flutn­ingi á kjöti í sér landamæra­eft­ir­lit sem sé ekki í sam­ræmi við lög­gjöf EES-samn­ings­ins.

Eftir rann­sókn sína á mál­inu hefur ESA nú kom­ist að sömu nið­ur­stöðu og SVÞ að núgild­andi lög­gjöf á Íslandi, varð­andi inn­flutn­ing á fersku kjöti frá öðrum EES-ríkjum, sé and­stæð EES-samn­ingnum. ESA telur íslensk stjórn­völd ekki hafa sýnt fram á að núver­andi fyr­ir­komu­lag megi rétt­læta með þeim rökum að það sé nauð­syn­legt til að vernda líf og heilsu manna og dýra. Þau vís­inda­legu gögn sem íslensk stjórn­völd hafa fram­vísað renni ekki stoðum undir gild­andi reglur heldur sýni þvert á móti að áhætta á sýk­ingu búfjár gegnum inn­flutn­ing á fersku kjöti sé hverf­andi. Tekur ESA því að fullu undir sjón­ar­mið SVÞ í þessu máli um að núver­andi kerfi feli í sér órétt­læt­an­legar og ónauð­syn­legar við­skipta­hindr­anir.

Með vísan til nið­ur­stöðu sinnar hefur ESA því sent áður­nefnt álit á íslensk stjórn­völd vegna máls­ins þar sem stað­fest er samn­ings­brot íslenska rík­is­ins gagn­vart EES skuld­bind­ingum þess. Verði ekki gripið til við­eig­andi ráð­staf­ana til þess að bregð­ast við rök­studda álit­inu innan ákveð­ins frests getur ESA vísað mál­inu til EFTA-dóm­stóls­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár