Sigríður Benediktsdóttir: Kjöraðstæður fyrir losun hafta

Sigríður Bene­dikts­dóttir, fram­kvæmda­stjóri fjár­mála­stöð­ug­leika Seðla­banka Íslands, segir að þær aðstæður sem nú eru uppi í efna­hags­málum Íslands séu um margt „kjörað­stæður“ fyrir losun fjár­magns­hafta. Þetta kom fram á fundi í Seðla­banka Íslands í morgun þar sem nýjasta útgáfa Fjár­mála­stöð­ug­leika var kynnt. „Það er heldur ekki víst að þessar aðstæður vari að eilífu,“ sagði Sigríður. Verð­bólga hefur farið lækk­andi und­an­farin miss­eri og mælist nú 1,8 pró­sent á árs­grund­velli, en verð­bólgu­mark­miðið lögum sam­kvæmt er 2,5 pró­sent. Þessar stöðugt betri ytri aðstæður í hag­kerf­inu hjálp­uðu til við að skapa aðstæður til að losa um höft.

Í rit­inu kemur þó fram að mesti áhættu­þátt­ur­inn geti verið sá að van­traust verði við­var­andi á los­un­ar­ferl­inu sem geti leitt til útflæðis á pen­ingum úr kerf­inu, með til­heyr­andi geng­is­sigi og verð­bólgu­á­hrifum.

Í rit­inu kemur fram að staða efna­hags­mála hafi haldið áfram að styrkj­ast, heilt á litið, á þessu ári. „Efna­hags­á­stand er að mörgu leyti gott um þessar mundir. Hag­vöxtur þessi miss­erin er með því mesta sem ger­ist á meðal þró­aðra ríkja og slak­inn í þjóð­ar­bú­skapnum er óðum að hverfa,“ segir Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri, í upp­hafi inn­gangs í rit­inu. Þó sé fyrir hendi greiðslu­jafn­að­ar­vandi í þjóð­ar­bú­inu sem þurfi að leysa, og að því sé unnið þessi miss­erin. Þar á meðal er að lengja í skulda­bréfi Lands­bank­ans gagn­vart þrota­búi gamla bank­ans, og taka á málum slita­búa föllnu bank­anna þriggja með þeim hætti að það ógni ekki fjár­mála­stöð­ug­leika lands­ins, einkum gengi krón­unnar.

Í kynn­ingu sinni sagði Sigríður að við­skipta­bank­arnir á Íslandi stæðu traustum fótum, væru vel fjár­magn­aðir og með skýr­ari rekstr­ar­grunn en und­an­farin ár. Þó bæri enn á því að upp­gjör lit­uð­ust af ýmsum tíma­bundnum breyt­ingum á efna­hagnum, s.s. upp­færslu á eignum og öðrum óreglu­legum liðum.

Í Fjár­mála­stöð­ug­leika kemur fram að heildar eigið fé við­skipta­bank­anna þriggja, Íslands­banka, Arion banka og Lands­bank­ans, hafi numið 568 millj­örðum króna um mitt þetta ár. Eig­in­fjár­hlut­fall bank­anna er auk þess hátt í alþjóð­legum sam­an­burði.

 


Viðskiptabankarnir


Eig­in­fjár­hlut­fall
Arion banki 2013 23,6
Íslands­banki 2013 28,4
Lands­bank­inn 2013 26,7
MP banki 2013 14,2
Arion banki Júní 2014 25,6
Íslands­banki Júní 2014 29,3
Lands­bank­inn Júní 2014 26,8
MP banki Júní 2014 15,1

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár