Pæling dagsins: Lífeyrissjóðafólkið vill vera í stjórnunum

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Svana Helen Björns­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður Samtaka iðn­að­ar­ins, skrif­aði skarpa grein í Morg­un­blaðið um síð­ast­liðna helgi. Þar setti hún fram þau sjón­ar­mið að hvorki stjórn­ar­menn né starfs­menn líf­eyr­is­sjóðs ættu að sitja í stjórnum atvinnu­fyr­ir­tækja í umboði við­kom­andi sjóðs. Það væri ekki fag­legt og gæti leitt til hags­muna­á­rekstra. Rit­stjórn Kjarnans ræddi þetta einmitt á dög­unum og hefur fengið upp­lýs­ingar um það að ef fag­fólk leitar eftir að því að taka sæti í stjórnum þar sem líf­eyr­is­sjóðir fara með stóran eign­ar­hlut, þá geti það verið erfitt á fá slík tæki­færi. Fólkið í stjórnum líf­eyr­is­sjóð­anna sæki það stíft að setj­ast sjálft í stjórnir fyr­ir­tækj­anna. Grein Svönu er gott inn­legg í umræðu um þessi mál. Ekki síst í ljósi þess hversu gríð­ar­lega umfangs­miklir líf­eyr­is­sjóð­irnir eru í atvinnu­líf­inu.

Hægt er að skrá sig á póst­lista Kjarnans hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár