Íbúðalánasjóður selur 400 íbúðir

Íbúða­lána­sjóður hefur ákveðið að setja 400 íbúðir úr eigna­safni sjóðs­ins í sér­stakt sölu­ferli. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá sjóðnum. Upp­lýs­ingar um sölu­ferlið má finna á heima­síðu Íbúða­lána­sjóðs. Formlegt sölu­ferli hefst þann 17. októ­ber nk. og þá geta vænt­an­legir kaup­endur nálg­ast upp­lýs­inga­skýrslu um sölu­ferlið og eign­irnar á heima­síðu Íbúða­lána­sjóðs, að því er segir í til­kynn­ingu frá Íbúða­lána­sjóði.

„Íbúða­lána­sjóður mun bjóða íbúð­irnar til sölu í sjö eigna­söfnum, en til­boðs­gjafar geta boðið í eitt eða fleiri söfn. Þær 400 íbúðir sem boðnar verða til sölu í eigna­söfn­unum sjö eru stað­settar á Aust­ur­landi, Norð­ur­landi, Vest­ur­landi, Suð­ur­landi, Suð­ur­nesjum og á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Fast­eigna­mat þeirra er um 6,5 millj­arðar króna. Sjóð­ur­inn gerir þá kröfu til þeirra sem bjóða í eign­irnar að þeir geri grein fyrir því hvernig þeir ætla að við­halda útleigu íbúð­anna og að þeir hafi trausta getu til fjár­mögn­unar kaupanna,“ segir í til­kynn­ingu frá Íbúða­lána­sjóðs.

Í til­kynn­ingu segir að Íbúða­lána­sjóður vilji stuðla að virkum leigu­mark­aði til fram­tíðar litið. „Flestar þeirra eigna sem fara í sölu­ferli að þessu sinni eru nú þegar í útleigu og margar þeirra voru byggðar sér­stak­lega sem leigu­í­búðir. Við söl­una er lagt til grund­vallar að þær verði ein­ungis seldar til aðila sem ætla að reka þær áfram til útleigu. Á þennan hátt vill Íbúða­lána­sjóður stuðla að upp­bygg­ingu leigu­mark­aðar á Íslandi með hús­næð­is­ör­yggi þeirra sem búa í eign­unum að leið­ar­ljósi,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Áhuga­sömum kaup­endum verður boðið til kynn­ing­ar­fundar þriðju­dag­inn 14. októ­ber nk. kl. 9 í hús­næði Capacent að Ármúla 13 í Reykja­vík. Þeir sem hyggj­ast sækja fund­inn verða að skrá sig til þátt­töku fyrir lok mánu­dags­ins 13. októ­ber nk. Skráning fer fram á heima­síðu Íbúða­lána­sjóðs undir tengl­inum „Sala sjö fast­eigna­safna – skrán­ing á kynn­ing­ar­fund“. Á fund­inum verður farið yfir sölu­ferlið og fast­eigna­söfn­unum lýst nánar, að því er segir í til­kynn­ingu sjóðs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár