Þingmaður vill kalla forstjóra TR á teppið hjá velferðarnefnd

Sigríður Lillý Bald­urs­dóttir, for­stjóri Trygg­inga­stofn­unar, verður kölluð á fund vel­ferð­ar­nefndar Alþingis, að beiðni Ragn­heiðar Rík­harðs­dóttur full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks í nefnd­inni, vegna við­bragða stofn­un­ar­innar við nýju áliti Umboðs­manns Alþingis.

Samkvæmt áliti umboðs­manns braut Trygg­inga­stofnun lög með því að láta sér­stakt við­bót­ar­skil­yrði fyrir greiðslum örorku­bóta tvö ár aftur í tím­ann, þar sem kveðið var á um "sér­stakar aðstæður." Trygg­inga­stofn­unin hefur þannig synjað umsóknum um aft­ur­virkar örorku­líf­eyr­is­bætur á þeim rökum að skil­yrðið sé ekki upp­fyllt.

Í til­kynn­ingu frá stofn­un­inni í kjöl­far álits Umboðs­manns Alþingis sagði: "Telji ein­hver að réttur hafi verið brot­inn vegna synj­unar á aft­ur­virkum greiðslum er bent á að hægt er að óska end­ur­upp­töku á mál­inu hjá stofn­un­inni." Þannig virð­ist Trygg­inga­stofnun ekki ætla að hafa frum­kvæði að því að leið­rétta fyrri ákvarð­anir sínar. Vara­for­maður Sjálfs­bjargar hefur gagn­rýnt við­brögð Trygg­inga­stofn­unar.

Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir gagn­rýnir sömu­leiðis við­brögð Trygg­inga­stofn­unar og vill að for­stjóri stofn­un­ar­innar geri grein fyrir afstöðu hennar. "Samkvæmt áliti umboðs­manns braut Trygg­inga­stofnun gegn skjól­stæð­ingum sínum. Í ljósi þess skorti alla auð­mýkt í við­brögð stofn­un­ar­innar við áliti umboðs­manns. Auðvitað á stofn­unin að hafa frum­kvæði að því að leið­rétta hlut sinna skjól­stæð­inga og fara yfir þær synj­anir sem hún hefur veitt í krafti þessa ákvæðis," segir Ragn­heiður í sam­tali við Kjarnann.

"Ég lít ávirð­ingar umboðs­manns mjög alvar­legum augum. Það er mjög alvar­legt þegar Umboðs­maður Alþingis gerir athuga­semdir við stórn­sýslu og verk­lag opin­berra stofn­anna með þessum hætti."

For­stjóri Trygg­inga­stofn­unar hefur verið boð­aður á fund vel­ferð­ar­nefndar mið­viku­dag­inn 15. októ­ber, ásamt full­trúum frá Öryrkja­banda­lagi Íslands og Þroska­hjálp.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár