BSRB harmar umræðu um opinbera starfsmenn

Stjórn BSRB harmar nei­kvæða og vill­andi umræðu sem hefur verið áber­andi í garð opin­berra starfs­manna á und­an­förnum vikum. Þetta kemur fram í ályktun frá stjórn­inni. Tekið er fram í álykt­un­inni að störfum á vegum rík­is­ins hafi fækkað um meira en 10 pró­sent frá efna­hags­hurni. „Þrátt fyrir mikla fækkun starfs­fólks hefur stofn­unum rík­is­ins verið gert að halda óbreyttu þjón­ustu­stigi,“ segir í álykt­unn­inni.

Minnt er á það í álykt­unn­inni að opin­berir starfs­menn hafi staðið vörð um grunn­þjón­ustu í sam­fé­lag­inu á erf­iðum tímum, ekki síst heil­brigð­is­þjón­ustu og umönnun ýmis konar.

Álykt­unin er fer hér að neðan í heild sinni.

Stjórn BSRB harmar þá nei­kvæðu og vill­andi umræðu sem hefur verið áber­andi í garð opin­berra starfs­manna á und­an­förnum vikum.

Störfum á vegum rík­is­ins hefur fækkað um meira en 10% frá efna­hags­hruni. Þrátt fyrir mikla fækkun starfs­fólks hefur stofn­unum rík­is­ins verið gert að halda óbreyttu þjón­ustu­stigi. Yfir­gnæf­andi meiri­hluti opin­berra starfs­manna sinnir grunn­stoðum sam­fé­lags­ins. Þeir veita heil­brigð­is­þjón­ustu og umönnun, tryggja öryggi okkar og veita menntun. Það fólk sem í almanna­þjón­ust­unni starfar hefur frá efna­hags­hruni lagt á sig ómælt erf­iði til að halda grunn­þjón­ustu lands­ins gang­andi.

Þrátt fyrir það hefur hluti kjör­inna full­trúa reglu­lega vegið gróf­lega að starfs­heiðri þessa fólks með mjög ósann­gjörnum hætti. Ítrekað hafa rang­færslur um rétt­indi opin­berra starfs­manna, kjör þeirra og fjölda verið sett fram sem sann­indi. Allt tal um frek­ari fækkun opin­berra starfs­manna myndi aftur á móti kalla á gjör­breytta þjóð­fé­lags­mynd – skert öryggi, lak­ari mennt­un­ar­mögu­leika og veik­ara heil­brigð­is­kerfi.

Stjórn BSRB krefst þess að umræða um rekstur rík­is­ins og opin­bera starfs­menn byggi á stað­reyndum en ekki ósönnum full­yrð­ingum, sem virð­ast vera settar fram í þeim til­gangi að rétt­læta frek­ari nið­ur­skurð og skerða rétt­indi opin­berra starfs­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár