Áhrifamikið myndband um meinsemdina í Reykjanesbæ

Guð­mundur Guð­munds­son, sjó­maður, hefur búið til áhrifa­mikið mynd­band þar sem birt­ast yfir tvö hund­ruð ljós­myndir Styrmis Barka­sonar af tómum og nið­ur­níddum húsum í Reykja­nesbæ. Mynd­bandið er hátt í tíu mín­útur að lengd.

Í sam­tali við Kjarnann kveðst Guð­mundur hafa ráð­ist í mynd­banda­gerð­ina til að vekja athygli á stöð­unni. "Þetta er mein­semd í íslensku sam­fé­lagi. Fjöl­skyldur sem lent hafa á van­skila­skrá fá ekki leigt hús­næði, og bank­arnir og Íbúða­lána­sjóður sjá ekki hag sinn í því að halda húsum við og leigja þau út."

Eins og áður segir eru ljós­mynd­irnar í mynd­band­inu úr mynda­seríu grunn­skóla­kenn­ar­ans Styrmis Barka­sonar, sem tók og birti yfir þrjú hund­ruð myndir af yfir­gefnum húsum í Reykja­nesbæ. Í frétt DV um ljós­mynda­ser­í­una segir Styrmir um upp­á­tækið: "Hug­myndin kvikn­aði þegar ég var að aka á milli staða í Reykja­nesbæ og efnd til inn­an­bíl­skeppni í að koma auga á tómt hús­næði. Sá leikur varð fljótt nið­ur­drep­andi. Ég var sem sagt úti að aka með börnin," sagði Styrmir og hló. "Öll förum við okkar leiðir í og úr vinnu og á milli staða erum við svo upp­tekin að stara á mal­bikið að ég held að flestir hafi bara séð vand­ann í sínu nærum­hverfi og ekki grunað hve stór hann er." Ljós­mynda­verk­efni Styrmis er hægt að skoða hér.

Guð­mundur Guð­munds­son, sem á veg og vanda að mynd­band­inu, vonar að það muni vekja athygli. "Það er ekki lengur til hús­næð­ispóli­tík á Íslandi sem passar við lág­launapóli­tík­ina sem nú er rekin á Íslandi. Hús­næð­is­málapóli­tíkin sofn­aði værum blundi þegar fjár­mála­stofn­an­irnar sett­ust í fram­sætið. Það verður að gera eitt­hvað í þessum málum," segir Guð­mundur í sam­tali við Kjarnann.

Um fjöru­tíu pró­sent fast­eigna Íbúða­lána­sjóðs (ÍLS) eru á Suð­ur­nesjum, en sjóð­ur­inn átti þar 831 fast­eign í lok ágúst. ÍLS á hlut­falls­lega flestar eignir á Suð­ur­nesjum. Samband sveit­ar­fé­laga á Suð­ur­nesjum lýsti nýverið í ályktun þungum áhyggjum af þróun eign­ar­halds hús­næðis á svæð­inu.

Í Reykja­nesbæ er veru­legur skortur á leigu­hús­næði, bæði á almennum mark­aði og í félags­lega kerf­inu. Samkvæmt frétt Vík­ur­frétta frá því í lok apríl, hafa margar hús­eignir í eigu ÍLS staðið auðar mán­uðum og jafn­vel árum saman. Þær eru að grotna niður og eru nágrönnum til ama.

Í mán­að­ar­skýrslu ÍLS fyrir ágúst, kemur fram að hug­myndir um að sjóð­ur­inn fari í meiri­háttar end­ur­bætur á hús­næði til að koma því í leigu sam­ræm­ist illa hlut­verki og heim­ildum sjóðs­ins. Þá hafi sjóð­ur­inn enga tekju­stofna til að mæta þeim miklu útgjöldum sem eru sam­fara jafn umfangs­miklum end­ur­bótum. Slíkar fram­kvæmdir kalli á frek­ari fjár­fram­lög til sjóðs­ins.

Hægt er að sjá mynd­band Guð­mundar Guð­munds­sonar, um tómu húsin í Reykja­nes­bær, hér að neðan.

[embed]https://vimeo.com/108223063[/embed]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár