Þorgerður Þráinsdóttir tekur við Fríhöfninni

Þor­gerður Þrá­ins­dóttir hefur verið ráðin fram­kvæmda­stjóri Frí­hafn­ar­innar úr hópi rúm­lega eitt hund­rað umsækj­enda. Hún mun hefja störf hjá Frí­höfn­inni á næstu vikum. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Frí­höfn­inni. Þor­gerður hefur víð­tæka reynslu af stjórnun og smá­sölu­rekstri. Hún kemur til Frí­hafn­ar­innar frá Lyfju hf. þar sem hún sat í fram­kvæmda­stjórn í tíu ár, síð­ast sem for­stöðu­maður versl­ana- og mark­aðs­sviðs en þar á undan sem starfs­manna­stjóri. Áður hefur hún meðal ann­ars starfað sem ráð­gjafi hjá IBM Business Consulting Services í mannauðs­málum og rann­sóknum, að því er segir í til­kynn­ingu. Þor­gerður er með BA og Cand.Psych gráðu í sál­fræði frá Háskóla Íslands og hefur jafn­framt lokið PMD stjórn­enda­námi frá Opna háskól­anum. „Það eru spenn­andi verk­efni framundan hjá Frí­höfn­inni. Ég hlakka til að takast á við þau og kynn­ast starfs­fólk­inu sem starfar hjá fyr­ir­tæk­inu. Farþegum um Kefla­vík­ur­flug­völl hefur líka fjölgað mikið að und­an­förnu sem felur í sér bæði tæki­færi og áskor­anir fyrir Frí­höfn­ina“ segir Þor­gerður í til­kynn­ingu. Frí­höfnin rekur fimm versl­anir í Flugstöð Leifs Eiríks­sonar og þar starfa um 140 manns. Tekjur Frí­hafn­ar­innar hafa vaxið jafnt og þétt und­an­farin ár og hefur Frí­höfnin á s.l. fjórum árum skilað nálægt 10 millj­örðum króna til eig­enda sinna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár