Óskar engum að horfa á íslenskar fréttir oftar en einu sinni

Illugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, sagði í ræðu­stól Alþingis í gær að hann vilji ekki leggja það á nokkurn mann að horfa á íslenskar fréttir tvisvar sinnum eða oftar. Ummælin lét ráð­herra falla í fyr­ir­spurna­tíma Alþingis.

Í fyr­ir­spurna­tím­anum beindi Birgitta Jóns­dóttir þing­maður Pírata, þremur fyr­ir­spurnum til Illuga varð­andi gagna­safn RÚV. Birgitta vildi vita hvernig varð­veislu hljóð- og myndefnis RÚV væri háttað, hvernig ráð­herra hygg­ist bregð­ast við því að hljóð- og mynd­banda­safn RÚV liggi undir skemmdum, og hvort ráð­herra telji að hljóð- og myndefni RÚV eigi að vera aðgengi­legt almenn­ingi, og þá hvernig.

Illugi þakk­aði Birgittu fyrir fyr­ir­spurn­ina, og var sam­mála henni um að málið snúst ekki um fjár­hags­stöðu RÚV eða hlut­verk stofn­un­ar­innar. Málið snú­ist öðru fremur um menn­ing­ar­arf­inn og aðgengi þjóð­ar­innar að honum. Ráðherra upp­lýsti að við gerð nýs þjón­ustu­samn­ings við RÚV yrði fjallað um staf­ræna yfir­færslu á efni RÚV og hvernig það verði gert aðgengi­legt almenn­ingi. Þá sé í smíðum frum­varp sem taki á vanda útvarps­stöðva varð­andi höf­unda­varið efni.

Helgi Hrafn Guð­munds­son, þing­maður Pírata, tók þá til máls og gerði aðgengi að fréttum RÚV á net­inu að umfjöll­un­ar­efni. Hann gagn­rýndi að ein­ungis væri tryggt aðgengi að fréttum og frétta­skýr­ingum RÚV í nokkrar vikur, sem hann furð­aði sig á. Þar væri ekki um höf­unda­varið efni að ræða og því ekk­ert því til fyr­ir­stöðu að hafa fréttir RÚV aðgengi­legar á net­inu.

Birgitta Jóns­dóttir tók í sama streng, og fannst sér­stak­lega baga­legt að fréttir RUV frá tímum efna­hags­hruns­ins væru ekki aðgengi­legar á net­inu. Hún þekkti dæmi þess að hlekkir inn á fréttir úr hrun­inu, virk­uðu ekki lengur í heim­ilda­skrám rit­gerða. Hún beindi þá þeirri fyr­ir­spurn til mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra hvort hann hygg­ist beita sér fyrir því að koma þessu í lag, enda um mik­il­vægar sam­tíma­heim­ildir að ræða sem hafi mikið gildi fyrir þjóð­ina.

Illugi þakk­aði á ný fyrir umræð­una, og sagði mik­il­vægt að huga að varð­veislu á því fjöl­breytta efni sem RÚV fram­leiðir og varð­veitir. "Hvað varðar frétt­irnar, þá get ég svo sem alveg tekið undir það, að ég veit ekki hvort það eru tækni­legar eða fjár­hags­legar ástæður fyrir því að þær eru bara þennan ákveðna tíma (aðgengi­legar), ekki það að maður vilji leggja það á nokkurn mann að horfa á íslenskar fréttir tvisvar sinnum eða oftar jafn­vel, en það er þó þannig að það er nauð­syn­legt kannski sög­unnar vegna að gæta þess að þar sé aðgengi sem lengst."

Varðandi fréttir úr hrun­inu sagði Illugi: "Ég vil líka full­yrða það við hátt­virtan þing­mann, að það er ekk­ert sam­særi á bak­við það að þessar fréttir hafi horfið." Þá kall­aði þing­maður úr salnum: "Við­ur­kenndu það!", og upp­skar hlátur við­staddra. Illugi hélt þá áfram: "Sumir halda því fram að þessar fréttir komi verr út fyrir suma en aðra, en ég held að þarna sé auð­vitað frekar þá eitt­hvað tækni­legt mál sem skýri það."

Hægt er að sjá ummæli mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra á Alþingi hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár