Dýrast að æfa hjá Breiðabliki en ódýrast hjá Þór

Verð­lags­eft­ir­lit ASÍ tók saman æfinga­gjöld í knatt­spyrnu hjá 16 fjöl­menn­ustu íþrótta­fé­lög­unum víðs­vegar um landið. Skoðun á gjöld­unum leiddi í ljóst að mestur væri mun­ur­inn 57 pró­sent. Þetta kemur fram á vef­síðu ASÍ. Æfinga­gjöld eru oft stór útgjalda­liður hjá fjöl­skyldu­fólki.

Skoðuð var gjald­skrá hjá 4. og 6. flokki íþrótta­fé­lag­anna, að því er fram kemur á vef ASÍ. „Svo verð­lags­eft­ir­litið gæti borið gjald­skrána saman var fundið út mán­að­ar­gjald, þar sem félögin hafa ekki sam­ræmda upp­setn­ingu á gjald­skrá fyrir eitt ár í senn. Sum eru með árgjald, önnur ann­ar­gjöld og jafn­vel er búið að setja sölu á varn­ingi eða vinnu við mót inn í gjald­skrána,“ segir í frétt ASÍ.

4. flokkur


Borin var saman gjald­skrá fyrir 4. flokk eða 12 og 13 ára börn. Dýrast var að æfa hjá Breiða­bliki en þar kostar mán­uð­ur­inn 7.833 kr. eða 31.333 kr. fyrir 4 mán­uði. Ódýrast er að æfa hjá Þór á Akureyri en þar kostar mán­uð­ur­inn 5.000 kr. eða 20.000 kr. fyrir 4 mán­uði. „Verð­mun­ur­inn er 57% eða 11.333 kr,“ segir í frétt ASÍ.

6. flokkur


Verð­lags­eft­ir­litið bar einnig saman gjald­skrá fyrir 6. flokk eða 8 og 9 ára börn. Dýrast er að æfa hjá Breiða­bliki og Íþrótta­banda­lagi Akraness en þar kostar mán­uð­ur­inn 6.667 kr. eða 26.667 kr. fyrir 4 mán­uði. Ódýrast er að æfa hjá Íþrótta­fé­lag­inu Þór á Akureyri en þar kostar mán­uð­ur­inn 4.375 kr. eða 17.500 kr. Verð­mun­ur­inn er 52% eða 9.167 kr.

Sem dæmi um árgjald í 6. flokki á tíma­bil­inu 1.10.14-30.9.15 þá kostar árið hjá Stjörn­unni í Garðabæ 57.900 kr., hjá Haukum 69.000 kr. og Breiða­bliki 80.000 kr. Árgjald fyrir 2014-2015 hjá 4. flokki kostar 80.000 hjá Fjölni, 62.000 kr. hjá KR og 88.000 kr. hjá ÍA.

Tekið er fram að aðeins sé um að ræða verð­sam­an­burð og sú þjón­usta sem í boði er á æfingum íþrótta­fé­lag­anna er ekki metin. Það sama gildir um fjár­öflun og aðra nið­ur­greiðslu.


Knattspyrna haustið 2014


4. flokkur - haustönn 4 mán 6. flokkur - haustönn 4. mán
Knatt­spyrnu­fé­lag Akur­eyrar - KA 20.444 17.778
Íþrótta­fé­lagið Þór 20.000 17.500
Knatt­spyrnu­fé­lag Reykja­víkur - KR 20.667 19.333
Ung­menna­fé­lagið Stjarnan 21.967 19.300
Knatt­spyrnu­fé­lagið Fram 22.333 18.667
Knatt­spyrnu­fé­lagið Þróttur 22.500 18.933
Íþrótta­fé­lagið Grótta 22.600 22.600
Knatt­spyrnu­fé­lagið Haukar 24.000 23.000
Íþrótta­fé­lag Reykja­víkur - ÍR 21.600 18.600
Íþrótta­fé­lagið Fylkir 25.667 21.667
Fim­leika­fé­lag Hafna­fjarðar - FH 27.333 21.667
Knatt­spyrnu­fé­lagið Víkingur 26.667 21.667
Hand­knatt­leiks­fé­lag Kópavogs - HK 26.667 22.333
Ung­menna­fé­lagið Fjölnir 26.667 23.333
Ung­menna­fé­lagið Breiða­blik 31.333 26.667
Knatt­spyrnu­fé­lag ÍA 29.333 26.667

ódýr­ara fyrir kvk 6 fl. 15.000 kr. og fyrir 4 fl. 18.000 kr.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár