Íslendingar jákvæðir í garð líffæragjafar

Nið­ur­stöður rann­sóknar á við­horfi Íslend­inga til ætl­aðs sam­þykkis við líf­færa­gjafir, sýna að þeir eru afar jákvæðir í garð lög­gjafar þar sem gert er ráð fyrir ætl­uðu sam­þykki við líf­fær­gjafir. Stuðn­ingur við slíka lög­gjöf er tvö­falt meiri hér­lendis en mælst hefur í öðrum löndum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í grein um rann­sóknir á þessum við­horfum í nýj­ustu útgáfu Lækna­blaðs­ins.

Karen Rún­ars­dóttir meist­ara­nemi, Kjartan Ólafsson lektor og Ársæll Arn­ars­son líf­eðl­is­fræð­ingur unnu að rann­sókn­inni.

Líf­færa­ígræðsla er oft eina úrræðið fyrir sjúk­linga með líf­færa­bilun á loka­stigi en fram­farir á þessum sviði hafa verið gríð­ar­lega miklar frá því að fyrsta vel­heppn­aða aðgerðin var gerð í Boston árið 1954, að því er segir í grein­inni í Lækna­blað­inu. „Helsta vanda­málið við þessar lækn­ingar hefur hins vegar verið við­var­andi skortur á líf­færum til ígræðslu - eft­ir­spurn eftir þeim hefur auk­ist hratt án þess að fram­boðið hafi auk­ist til sam­ræmis,“ segir í grein­inni.

Ekki síst af þessum ástæðum hefur umræða um við­horf almenn­ings til lög­gjafar sem snýr að líf­færa­gjöf farið vax­andi, og mik­il­vægi þeirrar umræðu sífellt að aukast sömu­leiðis.

Lesa má grein­ina í Lækna­blað­inu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár