Pæling dagsins: Rétt hjá Sigurjóni að hafa „ekki trú á þessu“

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Fyrir nákvæm­lega sex árum í dag voru stjórn­völd að funda um hvernig væri hægt að bregð­ast við vanda bank­anna. Össur Skarp­héð­ins­son, fyrr­ver­andi ráð­herra og nú þing­maður, lýsti einu atvik­inu, þegar Lands­banka­menn voru að ræða við stjórn­völd, fyrir Rann­sókn­ar­nefnd Alþingis svona; „[Lands­banka­menn] [k]omu að kynna okkur eitt­hvað, frá­bært til­boð. „Og hann [Björgólfur Thor Björg­ólfs­son] sat þarna í sínum flottu fötum, ofsa­legur "seller", að selja eitt­hvað sem gekk út á það að þeir áttu að fá Glitni ókeypis og fá alla skap­aða hluti og síðan allan gjald­eyr­is­forð­ann og eitt­hvert "guarantee" til við­bótar. Og Halldór Krist­jáns­son sat þarna svona eins og lam­inn hundur og tók ekki mikið undir þetta. Svo var þessi fundur búinn, Sigurjón var þarna, það voru snúðar á borð­unum, skornir í tvennt, stórir snúðar. Sigurjón er nú munn­stór maður og mik­ill og þegar þeir voru farnir út og hann var einn eftir þá tók hann svona hálfan snúð, tróð honum upp í and­litið á sér og skaut undan snúðnum þess­ari setn­ingu: Ég hef ekki trú á þessu, ég hef ekki trú á þessu. Þá kom svona hönd með gullúri og kippti honum út." ... Þó Sigurjón sé þessa dag­ana að verj­ast ásök­unum ákæru­valds­ins í dóm­sal, og standi í ströngu, þá var það nú að lík­indum rétt hjá honum að hafa ekki of mikla „trú á þessu.“

Hægt er að skrá sig á póst­lista Kjarnans hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár