Viðskiptaráð vísar gagnrýni BSRB á bug

Við­skipta­ráð Íslands vísar gagn­rýni BSRB á bug, þegar kemur að úttekt á þróun opin­berra starf. Eins og greint var frá hér á vef­síðu Kjarnans í morgun þá gagn­rýnir BSRB Við­skipta­ráð harð­lega í til­kynn­ingu fyrir að bera á torg rangar tölur um þróun mál þegar kemur að opin­berum störfum. BSRB segir opin­berum störfum hafa fækkað um tæp­lega 11 pró­sent frá árinu 2008, og að opin­berum starfs­mönnum hafi fjölgað um 5,6 pró­sent á meðan fjöldi starfs­manna á almennum vinnu­mark­aði hafi auk­ist um 11,8 pró­sent.

Við­skipta­ráð hafnar þessum atriðum sem fram koma í til­kynn­ingu BSRB og segir að Við­skipta­ráð hafa stuðst við réttar tölur í sínu mati. Í til­kynn­ingu frá Við­skipta­ráði segir meðal ann­ars orð­rétt: „Stærsta mis­ræmið í tölum Við­skipta­ráðs og BSRB má finna í fjölda rík­is­starfs­manna um síð­ustu alda­mót. Í tölum BSRB er full­yrt að stöðu­gildi hjá rík­inu hafi verið 15.700 árið 2000 og vísað er til upp­lýs­inga frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu án þess að beinnar heim­ildar sé getið. Þessi full­yrð­ing stang­ast á við opin­berar upp­lýs­ingar frá sama ráðu­neyti. Í svari fjár­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn á Alþingi þann 19. nóv­em­ber 2009 kemur fram að fjöldi stöðu­gilda hjá rík­inu hafi verið 14.000 árið 2000. Við­skipta­ráð not­að­ist við hinar opin­beru tölur, en ekki kemur fram í til­kynn­ingu BSRB hvers vegna litið var fram­hjá þeim. Þá kemur fram í til­kynn­ingu BSRB að störfum hjá rík­inu hafi fækkað um 10,6% frá árinu 2008 og því haldið fram að full­yrð­ingar Við­skipta­ráðs um ein­ungis 3% fækkun rík­is­starfs­manna á þessum tíma séu rangar. Hér yfir­sést BSRB tvennt. Í fyrsta lagi var stór mála­flokkur, mál­efni fatl­aðra, fluttur frá rík­inu yfir til sveit­ar­fé­laga árið 2011 og færð­ust þá 905 stöðu­gildi á milli þess­ara aðila. Ef bera á saman tölur fyrir og eftir þessa til­færslu ber að leið­rétta fyrir henni. Sé það gert hverfur um helm­ingur þeirrar fækk­unar stöðu­gilda sem BSRB full­yrðir að átt sér hafi stað hjá rík­inu á þessu tíma­bili.

Í öðru lagi þá mið­aði Við­skipta­ráð í útreikn­ingum sínum við árið 2009, þegar efna­hags­á­ætlun Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins og síð­ustu rík­is­stjórnar hófst, en ekki árið 2008 líkt og BSRB virð­ist hafa talið. Að teknu til­liti til til­færslu mál­efna fatl­aðra hefur rík­is­starfs­mönnum fækkað um 3% frá árinu 2009, líkt og áður kom fram hjá Við­skipta­ráði, en rík­is­starfs­mönnum fækkað um tæp 5% frá árinu 2008 en ekki 10,6% eins og kom fram í til­kynn­ingu BSRB.“

Í til­kynn­ing­unni frá Við­skipta­ráði er enn fremur hamrað á því að fjölgun starfa hjá hinu opin­bera hafi verið veru­lega umfram fjölgun starfa á almennum vinnu­mark­aði, þvert á það sem fram kemur í til­kynn­ing­unni frá BSRB. „Ef litið er til fjölda opin­berra starfs­manna í heild, bæði hjá ríki og sveit­ar­fé­lögum, má sjá að þeim hefur fjölgað um 29% frá alda­mótum (úr 28.700 stöðu­gildum árið 2000 í 36.880 árið 2014 sam­kvæmt fjár­mála­ráðu­neyt­inu og Sambandi íslenskra sveit­ar­fé­laga).“

Til­kynn­ing­una frá Við­skipta­ráði má lesa í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár