SPRON-fólk ákært vegna láns til Exista

Fyrr­ver­andi spari­sjóðs­stjóri SPRON og fjórir fyrr­ver­andi stjórn­ar­menn hafa verið ákærðir fyrir umboðs­svik vegna láns sem SPRON veitti EXISTA 30. sept­em­ber 2008, skömmu fyrir fall fjár­mála­kerf­is­ins. RÚV greindi frá þessu í gær­kvöldi.

Hinir ákærðu eru Guð­mundur Örn Hauksson, spari­sjóðs­stjóri, og stjórn­ar­menn­irnir Rannveig Rist, sem er for­stjóri Rio Tinto Alcan, Margrét Guð­munds­dóttir, stjórn­ar­for­maður N1, auk Ara Berg­manns Ein­ars­sonar og Jóhanns Ásgeirs Baldurs.

Í frétt RÚV segir að ákæran snú­ist um lán til Exista sem var veitt á stjórn­ar­fundi SPRON 30. sept­em­ber 2008. Fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður SPRON, Erlendur Hjalta­son, sem jafn­framt var annar tveggja for­stjóra Exista ásamt Sigurði Val­týs­syni, er ekki ákærður en hann vék af stjórn­ar­fundi SPRON þegar lánið var sam­þykkt. Þetta er í fyrsta skipti sem sér­stakur sak­sókn­ari ákærir stjórn fjár­mála­fyr­ir­tækis vegna ákvarð­ana í aðdrag­anda hruns­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár