BSRB: Störfum hjá ríkinu hefur fækkað ekki fjölgað

Störfum hjá rík­inu hefur fækkað um tæp­lega 11 pró­sent frá árinu 2008. Ef litið er aftur til aldam­móta má sjá að starfs­mönnum rík­is­ins hefur fjölgað um 5,6 pró­sent frá árinu 2000 á meðan fjöldi starf­andi á vinnu­mark­aðnum hefur auk­ist um 11,8 pró­sent. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá BSRB, Banda­lagi starfs­manna ríkis og bæja, þar sem full­yrð­ingum Við­skipta­ráðs um þessi mál er vísað á bug. Á fundi ráðs­ins kom fram að rík­is­starfs­mönnum hefði fjölgað um 29 pró­sent frá alda­mótum. Tölur BSRB eru byggðar á upp­lýs­ingum frá Hagstofu Íslands og fjár­mála­ráðu­neyt­inu.

Í BSRB eru skráðir tæp­lega 22 þús­und félags­menn.

Í til­kynn­ingu BSRB segir enn fremur: „Ef fækkun starfs­manna rík­is­ins frá því í kringum efna­hags­hrunið er skoðuð má sjá að þeim hefur fækkað til muna. Árið 2008 var fjöldi stöðu­gilda hjá rík­inu alls 18.500 en árið 2014 voru þau orðin 16.600. Það er fækkun um 1900 stöðu­gildi eða um 10,6%. Þegar litið er aftur til alda­móta sést að með­al­fjöldi stöðu­gilda hjá rík­inu árið 2000 var 15.700 sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Fjár­mála­ráðu­neyt­inu. Árið 2014 voru stöðu­gildin orðin 16.600 sem gerir um 5,6% frá alda­mótum. Á sama tíma­bili hefur fjöldi starf­andi á vinnu­mark­aði öllum auk­ist um 11,8% og fólks­fjölgun í land­inu hefur verið 16,7%. Full­yrð­ingar um gríð­ar­lega fjölgun rík­is­starfs­manna frá alda­mótum og að aðhalds­að­gerðir rík­is­ins frá efna­hags­hruni hafi lítil áhrif haft á fjölda rík­is­starfs­manna eru því með öllu ósannar. Stað­reyndir máls­ins eru að rík­is­starfs­mönnum hefur fækkað til muna á síð­ustu sex árum sam­hliða miklum nið­ur­skurði á þeirri þjón­ustu sem ríkið kýs að veita íbúum lands­ins.“

BSRB segir að það sé skýr krafa að umræða um hag­ræð­ingu í rekstri rík­is­ins og skyn­sama ráð­stöfun á fjár­unum verði að byggja á stað­reyndum en ekki full­yrð­ingum byggðum á rang­færslum, „sem virð­ast vera settar fram í þeim til­gangi að rétt­læa frek­ari nið­ur­skurð“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár