Höfuðmeiðsl helsta öryggisvá í Formúlu 1

Franski öku­þór­inn Jules Bianchi liggur þungt hald­inn á gjör­gæslu í Japan eftir að hafa skautað út af Suzuka-braut­inni undir lok jap­anska kappakst­urs­ins í Formúlu 1 sem fram fór í morgun. Bianchi sem ekur fyrir Marussia-liðið gekkst undir skurð­að­gerð á höfði eftir að hafa verið ekið í sjúkra­bíl á bráða­vakt­ina.

Skiptar skoð­anir eru á því hvort aðstæður á Suzuka-braut­inni hafi verið ásætt­an­legar til kappakst­urs í morgun en felli­byl­ur­inn Phanfone gekk næst landi um svipað leyti og kappakst­ur­inn fór fram. Úrhellis rign­ingu gerði á meðan kappakstr­inum stóð. Sökum vat­selgs á braut­inni var mótið ræst fyrir aftan örygg­is­bíl en hann stöðv­aður þegar ein­ungis tveimur hringjum var lokið. Tuttugu mín­útum síðar óku bíl­arnir af stað á ný fyrir aftan örygg­is­bíl þar til Charlie Whiting, móts­stjóri í Formúlu 1, dæmdi aðstæður nógu góðar til að hefja kappakst­ur­inn fyrir alvöru, meðal ann­ars eftir að öku­menn höfðu gefið álit sitt yfir tal­stöð­ina.

Kappakst­ur­inn gekk stór­á­falla­laust í 44 hringi þrátt fyrir mikla rign­ingu og bar­átta liðs­fél­ganna hjá Mercedes, þeirra Lewis Hamilton og Nico Rosberg, var fjörug þegar þeir skipt­ust á að hafa for­ystu. Þegar Adrian Sutil missti stjórn á bíl sínum í vatns­elg í einni af hröð­ustu beygjum braut­ar­innar varð fyrsta óhapp móts­ins. Sauber-bíll Sutil skall á dekkja­vegg en öku­þór­inn sak­aði ekki.

Við venju­legar kring­um­stæður er talið öruggt að senda krana­bíl á vett­vang og gefa öðrum öku­þórum merki um að gæta ítr­ustu var­úðar umhverfis slys­stað­inn. Það var og gert en þegar kran­inn var að draga Sauber-bíl­inn inn um hlið á dekkja­veggnum missti Jules Bianchi stjórn á Marussia-bíl sínum á nákvæm­lega sama stað og Sutil, skaut­aði útaf en skall á krana­bílnum.

Ekki með meðvitund


Mótið var stöðvað um leið og ljóst var að ekki væri allt með felldu með því að flagga rauðum flöggum umhverfis braut­ina á hring 45 og lækna­bíll sendur á stað­inn. Tækni­menn og liðs­stjórar lið­anna eru í stöð­ugu sam­bandi við öku­menn sína á meðan kappakstri stendur og spurja jafnan yfir tal­stöð­ina hvort það sé í lagi með öku­þóra sína þegar þeir lenda í slysi. Þegar tækni­maður Bianchi kall­aði yfir tal­stöð­ina herma fregnir að ekk­ert svar hafi borist. Því er talið að Bianchi hafi misst með­vit­und við slysið. Hann hefur enn ekki komið til með­vit­undar, hálfum sól­ar­hring eftir slysið.

Nú er nótt í Japan og ólík­legt að frek­ari fregnir ber­ist af líðan Frakkans fyrr en snemma í fyrra­málið.

[caption id="attachment_8695" align="alignnone" width="768"] Bíll Bianchi hefur flotið í vatns­flaum­inum á Suzuka-braut­inni með þeim afleið­ingum að hann missti stjórn­ina.[/caption]

Skiptar skoðanir um aðstæður


Þó svo að lítið sem ekk­ert liggi fyrir um líðan Jules Bianchi er ljóst að þetta er með alvar­legri slysum í Formúlu 1 síð­ustu ár. Árekstrar og slys eru í raun og veru fremur tíð í jað­ar­sporti sem þessu en örygg­is­kröfur eru orðnar svo miklar að til und­an­tekn­inga heyrir að öku­menn slas­ist alvar­lega. Eðlilegt þykir að hljóta mar og finna fyrir eymslum eftir gríð­ar­lega harða árekstra á miklum hraða. Mesta hættan er þess vegna þegar aðskota­hlutir eða krana­bílar, eins og í þessu til­viki, eru innan örygg­is­svæðis braut­ar­innar.

[accordions type="toggle" handle="pm" space="yes" icon_color="#ff7700" icon_current_color="#404040"]
[accordion title="Meiri varúð höfð í rign­ingu" state="close" ]Und­an­farin ár hefur Charlie Whiting sýnt æ meiri varúð þegar kemur að regn­mótum í Formúlu 1. Þannig stóð kanadíski kappakst­ur­inn 2011 í hátt í fimm klukku­stundir vegna ítrek­aðra frest­ana. Reglan um lengd móta er sú að heild­ar­tími sem kappakstur tekur má ekki vera lengri en tveir klukku­tímar. Sé mótið stöðvað innan þess tíma stöðvast klukkan. En ekki mega líða meira en fjórir klukku­tímar frá því að kappakstur er ræstur og þar til honum líkur. Annars eru úrslit móts­ins stað­fest eftir fjórar klukku­stundir. Keppn­islið og aðstand­endur móts­ins í Japan höfðu áhyggur af því að mótið myndi drag­ast lengi vegna vatns­veð­urs­ins. Ekki bætti úr skák að nán­ast algert myrkur mundi skella á milli 17 og 18 að stað­ar­tíma. Því var ljóst að kappakst­ur­inn gat ekki staðið frá klukkan 15 til 19. Mótið var á end­anum ræst klukkan 15.[/accordion]
[/accordions]

Aðstæður á braut­inni Japan voru erf­iðar. Ekki aðeins fyrir öku­menn heldur einnig fyrir móts­hald­ara og móts­stjóra. Strax á sunnu­dags­morgun þegar ljóst var að mikið vatns­veður var á leið yfir braut­ina fóru full­trúar keppn­islið­anna að kalla eftir því að upp­hafi móts­ins yrði flýtt um tvær klukku­stundir, til klukkan 13:00 að stað­ar­tíma, til að koma í veg fyrir að slæm birtu­skil­yrði myndu há öku­mönnum undir lok móts­ins. Adrian Sutil sagði í við­tali við Autosport, þegar hann var spurður hvað hefði gerst, að erfitt hafi verið að koma auga á polla á braut­inni vegna myrk­urs. Sjálfur stóð hann handan vegriðs­ins þegar Bianchi skaut­aði á kran­ann.

Það voru líka skiptar skoð­anir á því hvort mótið ætti yfir höfuð að fara fram. Dæmi eru um að kappök­strum sé frestað vegna of mik­illar rign­ingar. IndyCar-móti í Brasilíu var til dæmis frestað fram til mánu­dags fyrir fáeinum árum vegna mik­illar rign­ingar. Niki Lauda, stjórn­andi hjá Mercedes-lið­inu og fyrr­ver­andi heims­meist­ari í Formúlu 1, var hins vegar stað­fastur á því að mótið skyldi fara fram og sá ekk­ert athuga­vert við regnið. Sjálfur lenti hann í ofboðs­legu slysi í Þýska­landi árið 1976 við svip­aðar aðstæður. Um það hefur meðal ann­ars verið gerð bíó­mynd. „Það er varla hægt að segja að nokkuð hafi verið gert rangt. Mótið var ræst á skyn­sam­legan máta, það var það sem þeir gerðu,“ segir Lauda. „En þeir hefðu getað ræst mótið fyrr. Það er engin spurn­ing. Það var fyr­ir­sjá­an­legt að mótið hefði átt að vera ræst klukkan 13.“

Eddie Jordan, fyrrum liðs­stjóri í Formúlu 1 og núver­andi grein­andi hjá BBC, er á sama máli og Lauda. „Í mínum huga er þetta mjög skýrt: við komum hingað til að keppa og það er það sem hefði átt að ger­ast og það er það sem gerð­ist,“ segir Jordan.

[caption id="attachment_8696" align="alignnone" width="768"] Massa taldi aðstæð­urnar vera og slæmar fyrir kappakstur í Suzuka.[/caption]

Massa fannst þetta fáránlegt


Mótið gekk slysa­laust fyrir sig í rúma 40 hringi áður en Sutil skaut­aði út af braut­inni. Um svipað leyti seg­ist Felipe Massa, öku­maður Williams-liðs­ins, hafa hrópað í tal­stöð­ina að aðstæð­urnar væru orðnar háska­legar. Massa hlaut sjálfur alvar­leg höf­uð­meiðsl árið 2009 þegar brot af fjöðr­un­ar­bún­aði ann­ars bíls skopp­aði af braut­inni og í höfuð hans vinstra megin með þeim afleið­ingum að hann höf­uð­kúpu­brotn­aði. Er það síð­asta alvar­lega slysið í Formúlu 1 þar til nú.

„Ég hafði áhyggjur,“ sagði Massa við BBC í Japan. „Ég var byrj­aður að öskra í tal­stöð­ina að það væri of mikið vatn á braut­inni.“ Hann segir að aðstæður á braut­inni hafi verið orðnar of hættu­legar, sér­stak­lega um leið og slysið átti sér stað. „Það tók nokkurn tíma að fá hann [örygg­is­bíl­inn] út á braut­ina og það var hættu­legt.“

Í kjöl­far slyss Massa árið 2009 hefur höfuð öku­þóra staðið uppúr í umræð­unni og reglu­setn­ingu um öryggi í Formúlu 1 og öðrum eins­sæt­is­móta­röðum. Á meðan allir limir öku­manna eru huldir í öruggri skel bíls­ins er það eina sem verndar höf­uðið fyrir skakka­föllum hjálmur og HANS-bún­aður. Hjálm­ur­inn verndar öku­menn tæp­lega fyrir þungum aðskota­hlutum sem skoppa á braut­unum, eins og Massa fékk að upp­lifa. Eftir árekstur í upp­hafi belgíska kappakst­urs­ins fyrir tveimur árum færð­ust áhyggjur manna til enn hrylli­legri slysa; ef þyngri hlutir, eins og heill bíll, skilli á höfði öku­manns. Fernando Alonso á Ferrari var til að mynda hepp­inn í Belgíu 2012 eins og sjá má á mynd­band­inu hér að neðan.

http://www.youtube.com/watch?v=MLIFXk9dOe4

Hug­myndir um lausnir til að útrýma þessu vanda­máli eru þó umdeildar enda stríða þær gegn hug­mynd fólks um Formúlu-kappakstur. Til að mynda hefur verið lagt til að byggja búr yfir öku­manns­klef­ann, reisa grind fyrir framan höfuð öku­manns­ins til að vernda hann í slysum sem þessum og svo hefur verið lagt til að bíl­unum verði ein­fald­lega lokað. Slíkar til­lögur verða að öllum lík­indum end­ur­vaktar á næstu vikum og mán­uðum. Ekkert hefur þó verið fest í reglur um hönnun og smíði bíla hvað þetta varðar ennþá.

[caption id="attachment_8697" align="alignnone" width="768"] Alonso klifrar úr Renault-bíl sínum eftir árekstur í Brasilíu 2003.[/caption]

Minningar um slys Senna vakna


Kjarninn fjall­aði um afleið­ingar dauða­slyss Ayrton Senna við 20 ára dán­araf­mæli hans í apríl á þessu ári. Senna fórst þegar hann missti stjórn á Williams-bíl sínum á miklum hraða með þeim afleið­ingum að hann skall á vegg. Höf­uð­meiðsl voru það sem á end­anum drógu Senna til dauða. Er það síð­asta dauða­slysið í Formúlu 1. Í kjöl­far dauða hans var reglum um öryggi öku­manna í Formúlu 1 snar­breytt og legu heilu kappakst­urs­braut­anna breytt til útrýma hættu­leg­ustu beygj­unum.

Síðan hafa orðið nokkur alvar­leg slys í Formúlu 1 sem áður hefðu að öllum lík­indum verið banaslys ef ekki væri fyrir bætt öryggi. Ber hér helst að nefna hrylli­legan árekstur sem Ricardo Zonta lenti í í Belgíu 1999, sam­stuð Eddie Irvine og Luciano Burti í Belgíu tveimur árum síðar með þeim afleið­ingum að bíll Burti grófst inn í dekkja­vegg, kaosið í Brasilíu 2003 þegar bílar Marks Webber og Fern­andos Alonso fóru gjör­sam­lega í köku (þar sköp­uð­ust raunar svip­aðar aðstæður og í regn­inu í Japan í morgun) og ofboðs­lega bíl­veltu Roberts Kubica í Kanada 2007.

Fylgist með frek­ari tíð­indum af líðan Jules Bianchi hér og á Twitter Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár