Pæling dagsins: Hægt að ná í meira fé í Landsbankann

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Það er mikið rætt um bága stöðu rík­is­sjóðs og leiðir sem hægt er að fara til þess að styrkja stöðu heil­brigð­is­kerf­is­ins. Rit­stjórn Kjarnans lagði við hlustir á dög­unum þegar einn sér­fræð­ingur á fjár­mála­mark­aði sagði alltof lítið vera rætt um það, að lækka eigið fé í Lands­bank­anum skipu­lega. Taka ein­fald­lega meira fé af því mikla eigið fé sem þar væri og fjár­magna ýmsar nauð­syn­legar aðgerðir með því. Eig­in­fjár­hlut­fallið er nú um 27 pró­sent, sem er veru­lega hátt á alla hefð­bundna mæli­kvarða þegar kemur að banka­starf­semi, og eigið féð tæp­lega 240 millj­arðar króna. Með því að lækka hlut­fallið í 18 til 20 pró­sent, og taka meira fé úr bank­anum með arð­greiðslum en hefur verið gert, þá gæti það hjálpað rík­inu mikið. Það kann að vera að ein­hverjum finn­ist þetta lang­sótt en sá sem nefndi þetta var alveg harður á því að þetta væri skyn­sam­leg­ast af öllu, og í þessu fælist ekki mikil áhætta heldur. Þetta væri hugs­an­lega skyn­sam­legra en að selja hlut í bank­anum eins og nefnt hefur verið, en ríkið á nán­ast allt hluta­féð í bank­anum. Það sakar ekki að pæla í þessu.

Hægt er að skrá sig á póst­lista Kjarnans hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár