Fjöldi Íslendinga sér Gunnar berjast í Globen

Bara­daga­kapp­inn Gunnar Nelson mætir Banda­ríkja­mann­inum Rick Story í Globen-íþrótta­höll­inni í Stokk­hólmi í kvöld. Verður bar­dagi þeirra loka­viður­eign kvölds­ins og þar af leið­andi aðal­bar­dag­inn sem allt snýst um í þess­ari umferð UFC-mótar­að­ar­innar. Gunnar er enn ósigr­aður í blönd­uðum bar­daga­í­þróttum eftir fjórtán bar­daga. Þrettán bar­daga hefur hann unnið en einusinni gert jafn­tefli.

Gunnar hefur barist í UFC-móta­röð­inni síðan í sept­em­ber 2012 þegar hann mætti DaMarques Johnson í Bret­landi. Bar­dag­inn setti sann­ar­lega tón­inn fyrir næstu bar­daga Gunnars enda þótti æstum slags­mála­að­dá­endum furðu­legt að sjá íslenska glímu­kapp­ann ganga inn við íslenskt reggí, sall­ar­ó­legur, ólíkt öðrum kepp­endum sem ganga flestir inn við þrum­andi læti, hopp­andi og skopp­andi til að halda hita í vövð­unum fyrir kom­andi bara­daga.

Eftir fjóra bar­daga á tvemur árum í UFC hefur Gunnar áunnið sér nokkra frægð meðal unn­enda bar­daga­í­þrótta. Nálgun hans að bar­daga þykir áhuga­verð og sterkir sigrar hans í búr­inu hafa orðið til þess að hann situr nú í tólfta sæti styrk­leika­lista UFC-deild­ar­innar í velti­vigt.

https://www.youtube.com/watch?v=cc1DaKbj-Zg

And­stæð­ingur Gunnars í bar­daga kvölds­ins er reyndur kappi með 25 bar­daga undir belt­inu (17 sigra og átta töp). Hann þykir mjög her­skár og hefur hlotið við­ur­nefnið „The Horror“ eða „Hrottinn“ fyrir vikið. Hann hefur meðal ann­ars barist við og sigrað nokkra af bestu bar­daga­köppum heims. Gunnar seg­ist í sam­tali við MMA CrazyTV (sjá mynd­band að ofan) ekki velta sér mikið upp úr því hvað and­stæð­ing­ur­inn sé að gera. Hann ein­beiti sér að sjálfum sér og þeim hæfi­leikum sem hann býr yfir og telur vera nógu góð vopn gegn hvaða and­stæð­ingi sem er.

Kjarninn spurði áhuga­mann­inn Halldór Hall­dórs­son, betur þekktan sem Dóra DNA, á Twitter um hvernig hann metur mögu­leika Gunnars í bar­daga kvölds­ins. Dóri er sann­færður um sigur Gunnars en minnir á að allt getur gerst í bara­daga.

Tölu­verður fjöldi Íslend­inga ferð­að­ist til Stokk­hólms til að vera vitni af bar­dag­anum í Globen. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans hófst partíið snemma í dag og mun að öllum lík­indum standa nokkuð fram­eftir. Búið er að skipu­leggja Íslend­ingap­artí á stórum skemmti­stað þar sem ráð­lagt er að horfa á bar­daga Gunnars og Story. Stuðn­ingur við Gunnar virð­ist jafn­framt liggja víðar en hjá Íslend­ingum í Svíþjóð því treyjur merktar Gunnari Nelson og æfinga­stöð­inni Mjölni eru mest áber­andi meðal áhan­genda.

[caption id="attachment_8668" align="alignnone" width="1000"] Gunnar stillti sér upp með Story eftir að báðir höfðu verið vigtaðir fyrir bar­dag­ann í kvöld.[/caption]

Foreldrar bera ábyrgð


Í kjöl­far bar­dag­anna í UFC, sem allir hafa verið sjón­varp­aðir hér á landi, hefur sprottið upp umræða um áhrif vin­sælda og vel­gengni Gunnars á börn. Margrét Júlía Rafns­dóttir, verk­efna­stjóri hjá Barna­heillum, lýsti Gunnari sem stór­hættu­legri fyr­ir­mynd fyrir börn í sam­tali við Bylgjuna eftir þriðja bar­dag­ann í UFC fyrr á þessu ári. Hún sagði börn eiga rétt á vernd gegn hvers kyns ofbeldi. „Ofbeld­is­myndir eru bann­aðar börnum þannig að í raun og veru er þetta ekki efni sem börn eiga að hafa fyrir augum sér,“ sagði Margrét Júlía meðal ann­ars. Þá hefur jafnan spunn­ist hávær umræða á sam­fé­lags­miðlum um eðli íþrótt­ar­innar og for­dæm­is­gildi fyrir börn í kjöl­far bar­daga.

Gunnar er í við­tali við helg­ar­blað DV sem kom út í gær. Þar er hann spurður út í sjálfan sig og hlut­verk sitt sem fyr­ir­mynd, enda sé hann vin­sæll íþrótta­maður. „Ég geri mér grein fyrir að sportið er harka­legt og ekki fyrir alla,“ segir hann og bendir á að sjálfur líti hann á sportið sem sjálfs­varn­ar­sport. „Ef ein­hver fer út í þetta með það fyrir augum að meiða fólk þá er sá hinn sami ein­fald­lega á rangri leið - og þú getur verið á rangri leið hvort sem þú ert í þess­ari íþrótt eða ein­hverri annarri.“

Um hlut­verk sitt sem fyr­ir­mynd barna bendir Gunnar á að það sé á ábyrgð for­eldra hvað sé haft fyrir börnum þeirra. Sjálfur ætlar hann að bíða með að kynna sportið fyrir syni sínum þar til sá stutti hefur náð þroska til.

Bardagi Gunnars og Rick Story verður sýndur í beinni útsend­ingu á Stöð 2 Sport í kvöld og hefst útsend­ing klukkan 19.

[divide style="dots" color="#404040"]

Fylgist með þessum á Twitter


Kjarninn mælir með að fylgj­ast með umræðum á Twitter á meðan íþrótta­við­burðum stendur. Það á auð­vitað við um bland­aðar bar­daga­í­þróttir eins og hvað annað. Hér eru til­lögur að fólki og merkjum til að fylgj­ast með á meðan bar­dag­anum í Stokk­hólmi stendur.

Dóri DNA



#ufcstockholm


#ufcstockholm Tweets

Dana White - eigandi UFC-mótaraðarinnar


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár