Pæling dagsins: Var Davíðs-leiðin betri?

Pæling dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarnans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum fréttum. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Í dag eru sex ár frá því að rík­is­stjórn Geirs H. Haarde sat á neyð­ar­fundum í ráð­herra­bú­staðnum við Tjarn­ar­götu og reyndi að átta sig á því hvað væri best að gera í ljósi fyr­ir­sjá­an­legs falls bank­anna. Neyð­ar­lögin voru svo sam­þykkt á mánu­deg­inum 6. októ­ber. Allir þekkja fram­haldið. Það er áhuga­vert að velta því upp, hvaða leiðir voru út úr vand­anum. Davíð Oddsson, for­maður stjórnar Seðla­banka Íslands á þessum tíma og nú rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, vildi nýta neyð­ar­rétt­inn til hins ítrasta, þjóð­nýta alla bank­ana, minnka þrýst­ing­inn á krón­una með upp­boðum, helst ekki setja fjár­magns­höft og alls ekki efna til sam­starfs við Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inn. Hann var með öðrum orðum eig­in­lega alveg á móti því hvernig farið var að. Var þetta rétt hjá Davíð? Hefði þetta verið betra en það sem var gert? Við komumst aldrei að því, en það má vera að þetta hafi verið rétt.

Hægt er að skrá sig á póst­lista Kjarnans hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár