Settur saksóknari tjáði sig um Guðmundar- og Geirfinnsmálið árið 1997

Davíð Þór Björg­vins­son laga­pró­fessor, sem Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra hefur sett sem sak­sókn­ara til að gefa end­ur­upp­töku í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu umsögn, tjáði sig ítar­lega um málið í sjón­varps­þætti árið 1997. Þar taldi Davíð Þór að það yrði erfitt fyrir Hæsta­rétt Íslands að taka málið ekki upp aftur, ef ný gögn kæmu fram sem sýndu fram á brotala­mir við rann­sókn máls­ins.

Sigríður Frið­jóns­dóttir, rík­is­sak­sókn­ari, lýsti sig van­hæfa í vik­unni vegna fjöl­skyldu­tengsla en Örn Hösk­ulds­son, sem var einn aðal­rann­sak­andi máls­ins, er giftur móð­ur­systur Sigríðar.

Sjón­varp­s­átt­ur­inn sem um ræðir hét "Undir sönn­un­ar­byrði," og var sýndur í Rík­is­sjón­varp­inu 29. apríl 1997, í kjöl­far sýn­ingar á heim­ilda­þáttum Sig­ur­steins Mássonar um Guð­mundar- og Geir­finns­málið.

Davíð Þór var gestur í umræðu­þætt­inum ásamt Ragnari Aðal­steins­syni, lög­manni Erlu Bolla­dóttur og Guðjóns Skarp­héð­ins­sonar, Jóni Friðriki Sig­urðs­syni sál­fræð­ingi, Þor­steini Pálssyni þáver­andi dóms­mála­ráð­herra og Ragnari Hall, sem þá var settur Rík­is­sak­sókn­ari í mál­inu.

Í þætt­inum sagði Davíð Þór: "Það sem ein­kennir þetta saka­mál er það að nið­ur­staðan er nán­ast ein­göngu byggð á játn­ingum sak­born­inga. Það er reynt með ýmsum hætti að styðja þessar játn­ingar sýni­legum sönn­un­ar­gögnum, og það gengur mjög illa. Þetta er allt mjög ræki­lega rakið í hér­aðs­dóm­inum og tekið svo til orða að þessi sýni­legu sönn­un­ar­gögn, önnur en játn­ingar sak­born­inga, tengi ekki sak­born­inga með óyggj­andi hætti við þessa atburði."

Þegar Árni Þór­ar­ins­son blaða­maður, sem stýrði umræðu­þætt­inum, spurði Davíð Þór hvort harð­ræði sem sak­born­ing­arnir sættu við rann­sókn máls­ins, ógildi máls­með­ferð­ina, svar­aði Davíð: "Þetta er ekki bara spurn­ing um þetta harð­ræði, heldur líka virð­ist sem ýmsar rétt­ar­fars­reglur og reglur um rann­sókn brota­mála sem að virð­ast líka hafa verið brotnar. Eins og til dæmis um það að þess sé gætt að rétt­ar­gæslu­menn séu við­staddir, yfir­heyrslur standa lengur en reglur gera ráð fyrir, skýrslu­gerð er í molum og svo fram­vegis. Og þetta er auð­vitað líka mjög alvar­legur hlutur."

Aðspurður um hvort hann teldi að skil­yrði væru fyrir hendi fyrir upp­töku máls­ins, svar­aði Davíð: "Kjarninn er þessi: Þetta mál hangir allt á þessum játn­ingum, og því skiptir það höf­uð­máli þegar verið er að meta það hvort skil­yrði séu til fyrir end­ur­upp­töku, að það komi fram nýjar upp­lýs­ingar til við­bótar þeim sem lágu fyrir þegar dóm­arnir voru kveðnir upp sem sýni það og sanni að það hafi verið stór­felldar brotala­mir við rann­sókn máls­ins. Þegar ég sagði að Hæsta­rétti yrði vandi á höndum, þá átti ég ein­fald­lega við það, að það kann að koma upp sú staða að það verði mjög erfitt fyrir þá að end­ur­upp­taka málið ekki."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár