Tónlistarkennarar á leið í verkfall

Kjara­við­ræður tón­list­ar­kenn­ara við Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga hafa siglt í strand, og félags­menn í Félagi tón­list­ar­kenn­ara (FT) munu um helg­ina kjósa um hvort knýja eigi fram leið­rétt­ingu á kjörum sínum með verk­falli. Þetta kemur fram í Skóla­vörðu Kenn­ara­sam­bands Íslands (KÍ), sem kemur út í dag.

FT býðst aðeins brot af þeim kjara­bótum sem önnur félög innan kenn­ara­sam­bands­ins hafa náð síð­ustu miss­eri. Tón­list­ar­kenn­arar eru í dag með allt að 39 pró­sentum lægri laun en fram­halds­skóla­kenn­arar, en til­boð við­semj­enda þeirra hljóðar upp á 2,8 pró­senta launa­hækkun. Kjara­samn­ingur FT við Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga rann út um síð­ustu ára­mót, en eftir árang­urs­lausar samn­inga­við­ræður sem hófust í byrjun des­em­ber, vís­aði við­ræðu­nefnd FT deil­unni til rík­is­sátta­semj­ara í júní. Samn­inga­við­ræður hafa þar með staðið yfir í um tíu mán­uði án árang­urs. Í milli­tíð­inni hafa öll önnur félög KÍ skrifað undir samn­ing við sína við­semj­endur.

Í bréfi sem Sigrún Grendal, for­maður FT, sendi félags­mönnum sínum á dög­unum eru vinnu­brögð við­semj­enda harð­lega gagn­rýnd. "Lögmálið virð­ist vera að það þurfi að sýna með óyggj­andi hættti að okkur sé alvara - að við séum til­búin til að fylgja eftir okkar kröfum." Atkvæða­greiðsla félags­manna í FT um verk­fall lýkur í dag.

Samþykki félags­menn FT að leggja niður störf hefst ótíma­bundið verk­fall þeirra mið­viku­dag­inn 22. októ­ber, að því gefnu að ekki náist samn­ingar í milli­tíð­inni.

Samkvæmt bréfi for­manns FT, hafa við­semj­endur félags­ins aðeins lagt fram eitt form­legt til­boð í við­ræð­unum. Það hljóð­aði upp á 2,8 pró­senta launa­hækkun fram á næsta vor. Þá hefur verið ámálgað við samn­inga­nefnd FT óform­legt til­boð upp á 4,4 pró­senta hækkun.

Tón­list­ar­kenn­arar beittu verk­falls­vopn­inu síð­ast árið 2001, en þá reikn­að­ist FT til að laun tón­list­ar­kenn­ara væru um 17 pró­sentum lægri en laun grunn­skóla­kenn­ara og 33 pró­sentum lægri en laun fram­halds­skóla­kenn­ara. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá KÍ munar nú allt að 37 pró­sentum á launum tón­list­ar­kenn­ara og grunn­skóla­kenn­ara, og laun fram­halds­skóla­kenn­ara eru allt að 39 pró­sentum hærri en laun tón­list­ar­kenn­ara eins og áður segir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár