Seðlabankinn heldur gengi krónunnar veiku

Verð­bólga, sem mælist nú 1,8%, hefur verið undir mark­miði í átta mán­uði sam­fleytt og horfur eru á minni verð­bólgu næstu mán­uði en spáð var í ágúst. Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans ákvað fyrr í vik­unni að halda vöxtum óbreyttum og eru stýri­vextir nú sex pró­sent. „Verð­bólgu­vænt­ingar hafa þok­ast nær mark­miði að und­an­förnu en lang­tíma­vænt­ingar eru enn nokkuð yfir því. Gjald­eyr­is­inn­streymi hefur haldið áfram en gjald­eyr­is­við­skipti Seðla­bank­ans hafa stuðlað að stöð­ug­leika krón­unnar,“ segir í frétta­til­kynn­ingu sem Seðla­bank­inn sendi frá sér í til­efni af því að vöxtum var haldið óbreyttum fyrr í vik­unni.

Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri lét hafa eftir sér eftir á fundi þegar vaxta­á­kvarð­anir voru kynntar að við­skipti seðla­bank­ans á gjald­eyr­is­mark­aði hefðu stuðlað að meiri stöð­ug­leika og þau hefðu komið í veg fyrir hækkun á gengi krón­unnar. Á þessu ári hefur seðla­bank­inn keypt gjald­eyri umfram það sem hann hefur selt. Umfangið er um 86 millj­arðar króna. Í ljósi þess að gjald­eyr­is­inn­streymi hefur auk­ist hratt þá hefur þetta stuðlað að því að krónan hefur hald­ist veik­ari. Ljóst er að tölu­vert miklu munar í þessum efnum og má búast við að gengi krón­unnar væri mun sterkara ef ekki hefði komið til þess­ara við­skipta seðla­bank­ans. „Aðhald pen­inga­stefn­unnar hefur auk­ist meira en áður var búist við sam­fara hrað­ari hjöðnun verð­bólgu og lækkun verð­bólgu­vænt­inga. Nokkur óvissa er þó um túlkun hag­gagna sakir breyttra upp­gjörs­að­ferða þjóð­hags­reikn­inga sem eykur tíma­bundið vand­ann við mat á æski­legu taum­haldi pen­inga­stefn­unnar. Kröft­ugur vöxtur inn­lendrar eft­ir­spurnar á kom­andi miss­erum og vax­andi spenna á vinnu­mark­aði gætu eftir sem áður leitt til auk­ins verð­bólgu­þrýst­ings og orðið til þess að nafn­vextir Seðla­bank­ans þyrftu að hækka,“ segir í til­kynn­ingu.

Hag­vöxtur mæld­ist 0,6 pró­sent á fyrri helm­ingi árs­ins, sam­kvæmt tölum frá Hagstofu Íslands. Spár seðla­bank­ans gera ráð fyrir ríf­lega þrjú pró­sent hag­vexti á þessu ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár