MP banki og Virðing hætta sameiningarviðræðum

Stjórnir MP banka hf. og Virð­ingar hf. hafa tekið sam­eig­in­lega ákvörðun um að halda ekki áfram við­ræðum um sam­ein­ingu félag­anna. Tilkynnt var um form­legar við­ræður þann 9. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tækj­unum. „Aðilar telja að við­ræð­urnar hafi verið áhuga­verðar og að miklir mögu­leikar geti falist í sam­ein­ingu félag­anna. Þær leiddu þó í ljós að áherslur og hug­myndir stjórna félag­anna voru ekki að öllu leyti þær sömu,“ segir í til­kynn­ingu frá félög­unum.

Kjarninn greindi frá því í lok ágúst og byrjun sept­em­ber að minni fjár­mála­fyr­ir­tæki á Íslandi hefðu rætt um að sam­eina krafta sína og voru hlut­hafar MP banka og Virð­ingar þar á meðal.

MP banki er með um 70 starfs­menn. For­stjóri er Sigurður Atli Jónsson og for­maður stjórnar er Þor­steinn Pálsson. MP banki er eini bank­inn sem er að fullu í eigu einka­að­ila s.s. líf­eyr­is­sjóða, fyr­ir­tækja og ein­stak­linga. MP banki sér­hæfir sig í að veita alhliða þjón­ustu á sviði eigna­stýr­ingar og fjár­fest­ing­ar­banka­starf­semi ásamt því að veita íslenskum fjár­festum, spari­fjár­eig­endum og atvinnu­lífi sér­hæfða banka­þjón­ustu. Afkomu­ein­ingar MP banka eru eigna­stýr­ing, banki og mark­aðir.

Virðing er alhliða verð­bréfa­fyr­ir­tæki sem veitir fjár­fest­inga­tengda þjón­ustu á sviði eigna­stýr­ingar, mark­aðsvið­skipta, fyr­ir­tækja­ráð­gjafar og rekst­urs fram­taks­sjóða. Virðing hefur starfs­leyfi sem verð­bréfa­fyr­ir­tæki og starfar undir eft­ir­liti FME. For­stjóri félags­ins er Hannes Frímann Hrólfs­son og stjórn­ar­for­maður Kristín Pét­urs­dóttir, sem jafn­framt er stærsti ein­staki eig­andi í gegnum KP Capital ehf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár