"Tryggingastofnun er að reyna að fá fólk upp á móti sér"

"Við fyrstu sýn virð­ist vera sem svo að þessi mik­il­væga stofnun, sem á fyrst og fremst að vinna fyrir fólk sem stendur höllum fæti, sé nán­ast að reyna að fá skjól­stæð­inga sína upp á móti sér, í stað þess að vinna með þeim." Þetta segir Bergur Þorri Benja­míns­son, vara­for­maður Sjálfs­bjargar, um við­rögð Trygg­inga­stofn­unar rík­is­ins við nýju áliti Umboðs­manns Alþingis.

Frétta­blaðið greindi í gær frá áliti umboðs­manns, þar sem hann segir að Trygg­inga­stofnun hafi án laga­stoðar sett til­tekin skil­yrði fyrir örorku­bótum aftur í tím­ann. Í til­kynn­ingu frá Trygg­inga­stofnun vegna álits­ins segir: "Telji ein­hver að réttur hafi verið á sér brot­inn vegna synj­unar á aft­ur­virkum greiðslum er bent á að hægt er að óska end­ur­upp­töku á mál­inu hjá stofn­un­inni." Þannig virð­ist Trygg­inga­stofnun ekki ætla að hafa frum­kvæði að því að leið­rétta fyrri ákvarð­anir sínar. Vísir greinir frá mál­inu.

Málið snýst um orða­lag í við­bót­ar­skil­yrðum Trygg­inga­stofn­unar fyrir greiðslu örorku­bóta tvö ár aftur í tím­ann. Þar er kveðið á um "sérstækar aðstæður," sem Umboðs­maður Alþingis telur ekki eiga sér stoð í lögum. Trygg­inga­stofnun hefur þannig synjað umsóknum um aft­ur­virkar örorku­líf­eyr­is­bætur á þeim rökum að skil­yrðið um "sér­stakar aðstæður" sé ekki upp­fyllt.

Upphaf máls­ins má rekja til synj­unar Trygg­inga­stofn­unar á bóta­beiðni þroska­skertrar konu, en stofn­unin dró í efa að fötlun hennar væri með­fædd og gaf henni ekki færi á að leggja fram frek­ari gögn máli sínu til stuðn­ings.

Í áður­nefndri til­kynn­ingu Trygg­inga­stofn­unar segir: "Ábending umboðs­manns Alþingis að orða­lagið "sér­stakar aðstæður" eigi sér ekki stoð í lögum er rétt­mæt. Munum við þegar bregð­ast við þeirri ábend­ingu og lag­færa texta bréf­anna. Synjunin á aft­ur­virkum greiðslum örorku­líf­eyris bygg­ist enda ekki á því hvort um "sér­stakar aðstæður" sé að ræða heldur því hvort skil­yrði mats á örorku sé upp­fyllt."

Í Frétta­blað­inu var rætt við Daníel Isebarn Ágústs­son, lög­mann Öryrkja­banda­lags Íslands, sem telur að hund­ruð öryrkja hafi verið snuðuð um bætur vegna þessa. Þá hafi Trygg­inga­stofnun þverskall­ast við end­ur­teknum ábend­ingum um að verk­lag stofn­un­ar­innar væri and­stætt lögum.

Vara­for­maður Sjálfs­bjargar gagn­rýnir vinnu­brögð Trygg­inga­stofn­unar harð­lega. "Þessi fram­koma stenst auð­vitað enga skoðun. Stofn­unin hefur við­ur­kennt brot sitt, og þá verður hún auð­vitað að bæta fyrir það. Ég hef talað við nokkra lög­fræð­inga í morgun og þeir eru allir á sömu skoðun. Ef stofn­unin hefði sett málið í ein­hvern ágrein­ing, verið ósam­mála þessu, þá hefði hún mögu­lega geta staðið á þessarri afstöðu. En víst hún við­ur­kennir þetta, þá á hún að bæta fyrir þetta," segir Bergur Þorri Benja­míns­son.

Hann segir mik­illar reiði gæta á meðal sinna skjól­stæð­inga vegna máls­ins. "Okkar fólk hefur gert þá sann­gjörnu kröfu að fá allar upp­lýs­ingar strax og því sé leið­beint í gegnum kerfið, af því að það stendur höllum fæti. Það hefur verið þessi tog­streita um hvort Trygg­inga­stofnun sé að upp­lýsa fólk um sinn rétt eða ekki, hvort verið sé í raun að leið­beina fólki í gegnum kerfið eða ekki. Þarna er því miður komin stað­fest­ing á því að menn hafa ekki leið­beint fólki rétta leið, þegar stofn­unin er að túlka reglur eftir sínu höfði er hún að beita fólk afls­munum. Stofn­unin er ein­fald­lega að segja við okkur að við getum bara talað við hönd­ina."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár