Maraþonsvindl tekið fyrir í áfrýjunardómstóli ÍSÍ í næstu viku

Áfrýj­un­ar­dóm­stóll ÍSÍ kveður upp dóm sinn á þriðju­dag­inn um meint svindl Arnars Pét­urs­sonar í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu. Arnar kom fyrstur Íslend­inga í enda­mark hlaups­ins, sem fram fór laug­ar­dag­inn 31. ágúst síð­ast­lið­inn, rúmum níu mín­útum á undan næsta manni og var krýndur Íslands­meist­ari karla í mara­þoni. Næsti Íslend­ingur á eftir Arnari var hlaupar­inn Pétur Sturla Bjarna­son, sem sigr­aði Reykja­vík­ur­mara­þonið árið áður.

Pétur Sturla kærði úrslit hlaups­ins til yfir­dóm­nefndar Reykja­vík­ur­mara­þons, og sak­aði þar Arnar um svindl í hlaup­inu með því að hafa notið lið­sinnis tveggja hjól­reiða­manna í hlaup­inu.

Kæruna byggði Pétur Sturla á 10. grein reglna Reykja­vík­ur­mara­þons, en þar segir: "Hlaupa­brautin er ein­göngu ætluð kepp­endum. Ekki er heim­ilt að fylgja hlaup­urum gang­andi, hlaup­andi, á hjóli eða öðrum far­ar­tækjum (und­an­þága fyrir fylgd­ar­menn fatl­aðra). Það er á ábyrgð þátt­tak­enda að vísa frá þeim sem vilja fylgja." Þá segir í 18. grein regln­anna: "Brot á ofan­greindum reglum ógilda þátt­töku­rétt í hlaup­inu."

Yfir­dóm­nefnd Reykja­vík­ur­mara­þons vís­aði kæru máls­ins frá. Í úrskurði dóm­nefnd­ar­innar er við­ur­kennt að tveir hjól­reiða­menn hafi fylgt Arnari þrjá fjórðu hluta hlaupa­leið­ar­innar, sem hafi verið brot á reglum mara­þons­ins, en dóm­nefnd­inni þótti ekki sannað að hjól­reiða­menn­irnir hafi aðstoðað Arnar í hlaup­inu. Þá hefði sigur hans verið það afger­andi að fylgd­ar­menn hans hefðu ekki haft áhrif á úrslit hlaups­ins.

Pétur Sturla kærði nið­ur­stöðu yfir­dóm­nefnd­ar­innar til dóm­stóls ÍSÍ, sem stað­festi úrskurð yfir­dóm­nefndar. Kærandi áfrýj­aði þá þeirri nið­ur­stöðu til áfrýj­un­ar­dóm­stóls ÍSÍ, sem mun taka málið fyrir á þriðju­dag­inn. Þar sem Pétur Sturla er búsettur erlendis mun full­trúi hans mæta í hans stað við fyr­ir­töku máls­ins. Hæsta­rétt­ar­lög­mað­ur­inn Jón Gunnar Zoëga er for­seti áfrýj­un­ar­dóm­stóls ÍSÍ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár