Ekkert mál frá skiptastjóra Baugs til Sérstaks saksóknara

Hæsta­rétt­ar­lög­mað­ur­inn Erlendur Gíslason, skipta­stjóri þrota­bús Baugs, hefur ekki fundið neinar vís­bend­ingar um refsi­verða hátt­semi í gögnum þrota­bús­ins, og hefur þar af leið­andi ekki sent eitt ein­asta mál til rann­sóknar hjá emb­ætti Sérstaks sak­sókn­ara. Þetta stað­festir Erlendur Gíslason í sam­tali við Kjarnann.

Þrotabú Baugs hefur hins vegar leitað réttar síns á einka­rétt­ar­legum for­sendum, meðal ann­ars með því að krefj­ast rift­unar á kaupum Baugs á eigin bréfum sum­arið 2008. Í fyrra rifti hér­aðs­dómur greiðslum Baugs frá 11. júlí 2008 til Fjár­fest­ing­ar­fé­lags­ins Gaums, Gaums Holding S.A. og Eign­ar­halds­fé­lags­ins ISP. Heild­ar­fjár­hæð greiðsln­anna nam um fimmtán millj­örðum króna, en fjár­hæðin var notuð til að greiða niður skuldir félag­anna hjá Kaup­þingi og Kaupt­hink Bank Luxembourg, sem seinna varð Banque Havil­l­and.

Fjár­fest­inga­fé­lagið Gaumur og Gaumur Holding S.A. voru þá stærstu eig­endur Baugs, en félögin voru í eigu Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar, Ásu Ásgeirs­dóttur, Jóhann­esar Jóns­sonar og Kristínu Jóhann­es­dóttur. Þá var og er eign­ar­halds­fé­lagið ISP í eigu Ingi­bjargar Pálma­dóttur, eig­in­konu Jóns Ásgeirs.

Í síð­asta mán­uði snéri Hæsti­réttur við dómi Hér­aðs­dóms Reykja­víkur varð­andi kröfu þrota­bús Baugs gegn Banque Havil­l­and og dæmdi bank­ann til að greiða búinu 1,3 millj­arða króna. Í nóv­em­ber verður flutt mál í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur, þar sem hlutur Kaup­þings verður tek­inn fyrir. Þar krefst þrota­búið að Kaupþing end­ur­greiði þrettán millj­arða króna.

Í sam­tali við Kjarnann segir Erlendur Gíslason að nið­ur­staðan í Banque Havil­l­and mál­inu hafi jákvæð áhrif á upp­gjör þrota­bús­ins, þó aðeins um örfá pró­sent. Þá sé ljóst að jákvæð nið­ur­staða í Kaup­þings­mál­inu muni hafa sam­bæri­leg áhrif.

Sam­þykktar kröfur í þrotabú Baugs nema rúmum hund­rað millj­örðum króna, en tæp­lega 400 millj­arða kröfum var lýst í búið. Líklegar heimtur í þrota­búið eru nú í kringum eitt pró­sent, en þær gætu farið í yfir fimm pró­sent ef áður­nefnt mál gegn Kaup­þingi vinnst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár