Sérstakur saksóknari neyðist til að hætta að rannsaka mál

Boðaður nið­ur­skurður á fjár­veit­ingum rík­is­sjóðs til Sérstaks sak­sókn­ara mun koma harð­lega niður á emb­ætt­inu, leiða til frek­ari upp­sagna og gera því nær ókleyft að sinna rann­sóknum á efna­hags­brotum. Ólafur Þór Hauksson, sér­stakur sak­sókn­ari, segir að emb­ættið muni ekki geta sinnt sínu lög­bundna hlut­verki verði boð­aður nið­ur­skurður fjár­veit­inga að veru­leika.

Blóðugur niðurskurður boðaður í frumvarpi fjármálaráðherra


Framlög úr rík­is­sjóði til emb­ættis Sérstaks sak­sókn­ara verða skorin niður um nærri helm­ing á milli ára, sam­kvæmt fjár­laga­frum­varpi Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra fyrir næsta ár.

Framlög rík­is­ins til Sérstaks sak­sókn­ara námu röskri 561 milljón á þessu ári, en á næsta ári hefur rík­is­sjóður eyrna­merkt ríf­lega 292 millj­ónir króna til rekst­urs emb­ætt­is­ins. Heild­ar­nið­ur­skurður á fjár­lögum til Sérstaks sak­sókn­ara á þessu ári nam um 774 millj­ónum króna, sé tekið mið af 487 millj­óna upp­söfn­uðum fjár­heim­ildum emb­ætt­is­ins frá árinu 2013.

Hæst numu fram­lög rík­is­ins til Sérstaks sak­sókn­ara árið 2012, eða röskum 1,3 millj­örðum króna. Síðan þá hafa fjár­veit­ingar til emb­ætt­is­ins verið skornar niður um hátt í 800 millj­ónir króna.

Starfsmönnum verður fækkað um þrjátíu til viðbótar


Til að bregð­ast við fyr­ir­hug­uðum nið­ur­skurði var sextán starfs­mönnum hjá Sér­stökum sak­sókn­ara sagt upp störfum í vik­unni. Þeirra á meðal eru átta lög­reglu­menn sem fá lausn frá emb­ætti 1. nóv­em­ber. Þegar upp­sagn­irnar hafa gengið í gegn, verða um fimm­tíu starfs­menn eftir hjá emb­ætt­inu. Sér­stakur sak­sókn­ari mun neyð­ast til að segja upp þrjá­tíu starfs­mönnum til við­bótar um ára­mótin, verði ekki gerðar breyt­ingar á fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varpi.

Í sam­tali við Kjarnann kveðst Ólafur Þór Hauksson, sér­stakur sak­sókn­ari, vona að fjár­laga­frum­varp næsta árs muni taka breyt­ingum í með­förum þings­ins. Hann hefur óskað eftir fundi með Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni for­sætis- og dóms­mála­ráð­herra til að gera honum grein fyrir stöð­unni.

Embættinu gert ókleyft að sinna sínu lögbundna hlutverki


Ólafur Þór segir að verði nið­ur­skurður á fjár­fram­lögum til emb­ætt­is­ins jafn blóð­ugur og í stefnir, munu starfs­menn­irnir sem eftir verða rétt ná að sinna þeim málum sem nú þegar eru komin til kasta dóm­stóla. Nið­ur­skurð­ur­inn muni óhjá­kvæmi­lega bitna á rann­sóknum og opn­unum á nýjum málum og emb­ætt­inu gert ókleyft að sinna sínu lög­bundna hlut­verki.

Fjórtán mál bíða nú rann­sóknar hjá Sér­stökum sak­sókn­ara, þar af fjögur umfangs­mikil. Í dag eru 96 mál til rann­sóknar hjá Sér­stökum sak­sókn­ara, þar af 39 svokölluð hrun­mál sem langt eru komin í rann­sókn. Í 187 málum er rann­sókn lokið og þau ýmist farin til ákæru­með­ferðar eða hafa hlotið efn­is­lega með­ferð fyrir dóm­stólum. Af þessum 187 málum, voru gefnar út 18 ákærur vegna 27 hrun­mála. Þá bíða ell­efu hrun­mál til við­bótar ákvörð­unar um sak­sókn.

Málin sem hafa verið til rann­sóknar hjá emb­ætti Sérstaks sak­sókn­ara en ekki leitt til ákæru eru 330 tals­ins. Þá hefur emb­ættið vísað frá 71 máli, rann­sókn hefur verið hætt í 132 málum og í 23 til­vikum hafa mál verið sam­einuð öðrum málum. Embættið hefur þar að auki sent 71 mál til ann­arra emb­ætta til með­ferðar og önnur verk­efni emb­ætt­is­ins, það er rétt­ar­beiðnir erlendis frá og rann­sókn­ar­beiðnir inn­an­lands, eru 33 tals­ins. Alls hafa 637 mál og verk­efni komið til kasta Sérstaks sak­sókn­ara frá stofnun.

Lögð áhersla á að ljúka aðeins fyrirliggjandi málum


Sér­stakur sak­sókn­ari segir við­búið að skert fjár­fram­lög til emb­ætt­is­ins muni gera því nær ókleyft að sinna rann­sóknum. Þá verði lögð höf­uð­á­hersla á að ljúka þeim málum sem búið er að gefa út ákærur í. "Það útheimtir mik­inn mann­afla og tíma að reka mál fyrir dóm­stólum, en á næsta ári fara fram nokkur stór rétt­ar­höld í málum hjá okkur."

Sem dæmi um verk­efni sem Sér­stakur sak­sókn­ari mun reka fyrir dóm­stólum á næstu mán­uðum, má nefna aðal­með­ferð fyrir Hæsta­rétti Íslands í Al-Thani mál­inu svo­kall­aða, stór mark­aðs­mis­notk­un­ar­mál tengd fyrr­ver­andi stjórn­endum Kaup­þings ann­ars vegar og Lands­bank­ans hins vegar, Milestone-málið, fjár­drátt­ar­mál tengt Marple, félags í eigu Skúla Þor­valds­sonar, CLN-málið sem teng­ist umboðs­svikum upp á 510 millj­ónir evra, Aserta gjald­eyr­is­málið og Stím-málið.

"Ef ráð­ist verður í þennan nið­ur­skurð, mun nær allt annað en þessi mála­rekstur stoppa hjá okkur. Það verður verð­ugt verk­efni að halda utan um hann, sér­stak­lega þar sem ekki er hægt að reikna með hámarks­af­köstum frá þeim starfs­mönnum sem hefur verið sagt upp."

Ólafur Þór hefur miklar áhyggjur af fram­tíð emb­ættis Sérstaks sak­sókn­ara. "Nú er til umræðu að íslenska ríkið kaupi upp­lýs­ingar erlendis frá um mögu­leg skattaund­an­skot Íslend­inga, og skatta­skjól þeirra erlendis. Ég verð að við­ur­kenna að mér finnst vanta inn í þá umræðu hvaða emb­ætti það er nú aftur sem sækir til saka í skatta­málum."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár