Jón Óttar á vitnalista verjenda í Landsbankamáli

Fjórir fyrr­ver­andi starfs­menn Lands­bank­ans eru sak­aðir um stór­tæka mark­aðs­mis­notkun, fyrir tugi millj­arða króna í aðdrag­anda banka­hruns­ins, í máli Sérstaks sak­sókn­ara á hendur þeim. Málið er annar angi ákæru sem Sér­stakur sak­sókn­ari gaf út í mars í fyrra, þar sem sex fyrr­ver­andi starfs­mönnum Lands­bank­ans var gefið að sök brot á lögum um verð­bréfa­við­skipti og almennum hegn­ing­ar­lögum.

Sigurjón Árnason, fyrr­ver­andi banka­stjóri Lands­bank­ans, og Sigríður Elín Sig­fús­dóttir, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja­sviðs Lands­bank­ans voru sýknuð af ákæru um mark­aðs­mis­notkun í fyrri anga ákærunnar er snérist að Ímon mál­inu svo­kall­aða, en Steinþór Gunn­ars­son, sem var fram­kvæmda­stjóri verð­bréfa­sviðs Lands­bank­ans, hlaut níu mán­aða fang­els­is­dóm, þar af hálft ár á skil­orði.

Á mið­viku­dag­inn fer fram aðal­með­ferð í seinna mark­aðs­mis­notk­un­ar­mál­inu í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur, en á meðal ákærðra í því máli eru áður­nefndur Sigurjón Árnason, Ívar Guð­jóns­son, fyrr­ver­andi for­stöðu­maður eigin fjár­fest­inga Lands­bank­ans, og Júlíus Steinar Heið­ars­son og Sindri Sveins­son, sem voru starfs­menn eigin fjár­fest­inga bank­ans.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er Jón Óttar Ólafsson, fyrr­ver­andi starfs­maður hjá Sér­stökum sak­sókn­ara, á meðal vitna sem kölluð verða fyrir dóm­inn. Nafn Jóns Óttars er að finna á vitna­lista Helga Sig­urðs­sonar hæsta­rétt­ar­lög­manns, sem heldur uppi vörnum fyrir Júlíus Steinar í mál­inu.

Jón Óttar Ólafsson hefur harð­lega gagn­rýnt vinnu­brögð emb­ættis Sérstaks sak­sókn­ara við sím­hler­anir í fjöl­miðlum að und­an­förnu, og sakað starfs­menn emb­ætt­is­ins um lög­brot með því að hafa hlustað á sím­töl sak­born­inga við verj­endur.

Hörður Felix Harð­ar­son, lög­maður Hreiðars Más Sig­urðs­sonar fyrr­ver­andi banka­stjóra Kaup­þings, krefst þess að mál Sérstaks sak­sókn­ara á hendur umbjóð­anda sínum, þar sem Hreiðar, Sigurður Ein­ars­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Kaup­þings, og Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, eru sak­aðir um tug­millj­arða umboðs­svik, verði vísað frá dómi vegna meintra ólög­mætra hler­anna. Við flutn­ing frá­vís­un­ar­kröf­unnar í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í síð­ustu viku krafð­ist Hörður Felix þess að Jón Óttar, Ólafur Þór Hauksson sér­stakur sak­sókn­ari og Bjarni Ólafur Ólafsson starfs­maður emb­ætt­is­ins yrðu kall­aðir til vitnis vegna þessa. Dómari máls­ins tók sér ótíma­bund­inn frest til að úrskurða um kröfu verj­anda Hreiðars Más.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár