„Vinnubrögð sem ættu ekki að tíðkast í siðuðu samfélagi“

Starfs­fólk Fiski­stofu mót­mælir harð­lega ákvörðun Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, um flutn­ing höf­uð­stöðva stofn­un­ar­innar til Akur­eyrar og þeim lög­lausu fyr­ir­ætl­unum sem kynntar voru í bréfi ráð­herra til starfs­manna dag­settu þann 10. sept­em­ber s.l. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá starfs­fólki Fiski­stofu. Í bréf­inu sem ráð­herra sendi starfs­fólki var meðal ann­ars talað um til­boð til starfs­manna um að þeir geti fengið styrk úr rík­is­sjóði upp á þrjár millj­ónir króna til þess að flytj­ast með stofn­unni til Akur­eyrar.

Til­kynn­ingin er harð­orð og er flutn­ing­ur­inn sagður ólög­legur og engin fag­leg sjón­ar­mið búi að baki. Þá hafi eng­inn starfs­maður Fiski­stofu lýst yfir vilja til þess að flytja með stofn­un­inni til Akur­eyrar, að for­stjór­anum frá­töldum. Mál­flutn­ingur stjórn­mála­manna, þar sem lands­byggð og höf­uð­borg­ar­svæð­inu sé att saman, sé óboð­legur og óþol­andi þegar um póli­tíska hreppa­flutn­inga sé að ræða, þar sem flytja á sér­fræði­menntað fólk, nauð­ugt vilj­ugt, milli lands­hluta án mál­efna­legra skýr­inga.

Til­kynnning­una í heild má lesa hér að neðan.

„Starfs­fólk Fiski­stofu mót­mælir harð­lega ákvörðun sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra um

flutn­ing höf­uð­stöðva stofn­un­ar­innar til Akur­eyrar og þeim lög­lausu fyr­ir­ætl­unum sem kynntar voru í bréfi ráð­herra til starfs­manna dag­settu þann 10. sept­em­ber s.l.

Ljóst er að ákvörð­unin styðst ekki við laga­heim­ild og er til þess fallin að skaða starf­semi stofn­un­ar­innar, enda hafa engir starfs­menn, utan fiski­stofu­stjóra, lýst áhuga á að flytj­ast með henni norður. Hvetur starfs­fólk Fiski­stofu ráð­herra til þess að falla þegar í stað frá hug­myndum um flutn­ing stofn­un­ar­innar, sem virð­ist afar mis­ráð­inn og und­ir­bún­ingi áfátt.

Mótmælt er áformum þar sem starfs­menn sem ekki hyggj­ast fylgja störfum sínum norður yrðu þving­aðir til þess að segja sjálfir upp störfum, enda gætu þeir átt á hættu að glata þeim rétt­indum, sem þeir ella hefðu, ef slit á ráðn­ing­ar­sam­bandi væri á ábyrgð vinnu­veit­anda. Vinnu­brögð af þessu tagi ættu ekki að tíðkast í sið­uðu sam­fé­lagi.

Und­an­farna daga hefur ráð­herra ítrekað látið í veðri vaka í við­tölum við fjöl­miðla að unnið sé að verk­efn­inu í sam­ráði við starfs­menn stofn­un­ar­innar. Starfs­fólk Fiski­stofu vísar þessu alfarið á bug. Skal áréttað að full­trúum starfs­manna var ekki boðið að taka þátt í gerð til­lagna sem starfs­menn ráðu­neyt­is­ins ásamt fiski­stofu­stjóra unnu að og lagðar voru fyrir ráð­herra í ágúst­lok. Var ráð­herra þá gerð skýr grein fyrir því að starf­menn ættu enga aðild að til­lög­unum. Virðist hann því tala gegn betri vit­und.

Í sumar kom fram að ráð­herra mæti það svo að flutn­ingur Fiski­stofu gæti kostað 100-200 millj­ónir króna. Nú liggur hins vegar fyrir gróf áætlun fiski­stofu­stjóra þar sem gert er ráð fyrir því að kostn­aður við flutn­ing­inn geti verið 200-300 millj­ónir króna, eða tvö­falt hærri en áður hafði verið nefnt og eru sjálf­sagt ekki öll kurl til grafar komin í þeim efnum. Vilja starfs­menn vekja athygli á þessu og hvetja ráða­menn til að huga vand­lega að því hvernig fjár­munum almenn­ings er varið. Vekur athygli að ekki virð­ist vera gert ráð fyrir þessum kostn­aði í þeim drögum að fjár­lögum sem fyrir liggja.

Starfs­fólk Fiski­stofu harmar dap­ur­lega til­burði stjórn­mála­manna sem reynt hafa að not­færa sér flutn­ing Fiski­stofu til þess að etja saman lands­byggð­inni ann­ars vegar og höf­uð­borg­ar­svæð­inu hins vegar. Engu skiptir hver á í hlut þegar með vald­boði er reynt að flytja fólk nauð­ugt vilj­ugt lands­horn­anna á milli. Mál­flutn­ingur á þessum nótum er óboð­legur og engum til fram­dráttar.

Ráðu­neytið hefur upp­lýst starfs­fólk Fiski­stofu um að í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu sé unnið að frum­varpi þar sem gert er ráð fyrir laga­breyt­ingum sem munu auð­velda vald­höfum að taka ákvarð­anir um stað­setn­ingu starfa og stofn­ana að eigin geð­þótta án þess að afla þurfi sér­stakrar laga­heim­ildar hverju sinni. Lýtur þetta að starfs­ör­yggi og rétt­indum allra opin­berra starfs­manna ekki síst í ljósi þeirra ummæla for­sæt­is­ráð­herra frá því í sumar þar sem fram kom að fyrir dyrum stæði flutn­ingur fleiri opin­berra stofn­ana. Starfs­fólk Fiski­stofu skorar á Alþing­is­menn að standa vörð um lög­gjaf­ar­valdið. Það stuðli að lýð­ræð­is­legum vinnu­brögðum stjórn­valda og standi gegn því að slíkar hug­myndir séu færðar í lög. Starfs­fólk ann­arra opin­berra stofn­ana er jafn­framt hvatt til þess að vera á varð­bergi og fylgj­ast grannt með þess­ari fram­vindu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár