Sýknudómi ÍSÍ vegna meints maraþonsvindls áfrýjað

Hlaupar­inn Pétur Sturla Bjarna­son hefur áfrýjað dóms­nið­ur­stöðu dóm­stóls ÍSÍ, þar sem nýkrýndur Íslands­meist­ari karla í mara­þoni, Arnar Pét­urs­son, var sýkn­aður af ásök­unum um svindl í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu, til áfrýj­un­ar­dóm­stóls ÍSÍ.

Í bréfi sem Pétur Sturla sendi áfrýj­un­ar­dóm­stóli ÍSÍ í dag, og Kjarninn hefur undir höndum, bendir hann á að yfir­dóm­nefnd Reykja­vík­ur­mara­þons hafi við­ur­kennt í úrskurði sínum að reglur hlaups­ins hafi verið brotnar þegar tveir hjól­reiða­menn fylgdu Arnari þrjá fjórðu hluta hlaupa­leið­ar­innar. Í 10. grein reglna Reykja­vík­ur­mara­þons segir: "Hlaupa­brautin er ein­göngu ætluð kepp­endum. Ekki er heim­ilt að fylgja hlaup­urum gang­andi, hlaup­andi, á hjóli eða öðrum far­ar­tækjum (und­an­þága fyrir fylgd­ar­menn fatl­aðra). Það er á ábyrgð þátt­tak­enda að vísa frá þeim sem vilja fylgja. Í 18. grein regln­anna segir enn­fremur: "Brot á ofan­greindum reglum ógilda þátt­töku­rétt í hlaup­inu."

Eins og Kjarninn hefur fjallað um, vís­aði yfir­dóm­nefnd Reykja­vík­ur­mara­þons kæru Péturs Sturla frá, þar sem ekki þótti sannað að hjól­reiða­menn­irnir hefðu aðstoðað Arnar í hlaup­inu, og sigur hans í mara­þon­inu hafi verið það afger­andi að fylgd hjól­reiða­mann­anna hafi ekki haft áhrif á úrslit Reykja­vík­ur­mara­þons­ins. Þá segir í nið­ur­stöðu yfir­dóm­nefnd­ar­innar: "Ósannað er einnig að þeir (hjól­reiða­menn­irnir) hafi hvatt hann (Arnar) áfram, og að hann hafi svindlað eins og full­yrt er í kærunni. Þá hefur hvergi komið fram að hann hafi þegið drykki úr hendi aðstoðar- eða fylgd­ar­manna." Þetta orða­lag er athygl­is­vert fyrir þær sakir að hvergi í kæru máls­ins er minnst á að fylgd­ar­menn Arnars hafi veitt honum drykki í hlaup­inu.

Faðir Arnars Pét­urs­sonar er Pétur Hrafn Sig­urðs­son sölu­stjóri hjá Íslenskum get­raunum. Hann hefur um ára­bil starf­aði innan íslensku íþrótta­hreyf­ing­ar­innar og skrif­aði grein­ar­gerð fyrir hönd sonar síns sem send var yfir­dóm­nefnd Reykja­vík­ur­mara­þons­ins. Þar við­ur­kennir Pétur Hrafn að hann og sonur hans hafi fylgt Arnari eftir hluta hlaups­ins sér til skemmt­unar.

Í áfrýj­un­ar­bréf­inu er jafn­framt vakin athygli á ósam­ræmi í úrskurði yfir­dóm­nefndar Reykja­vík­ur­mara­þons hins vegar, og dóms­orði dóm­stóls ÍSÍ ann­ars vegar. Í nið­ur­stöðu dóm­stóls ÍSÍ segir: "Samkvæmt þeim gögnum sem lögð hafa verið bæði fyrir yfir­dóms­nefnd Reykja­vík­ur­mara­þons og þennan dóm­stól verður ekki séð að sönnur hafi verið færðar á brot Arnars Pét­urs­sonar á 10. grein reglna sem gilda fyrir þátt­tak­endur í Reykja­vík­ur­mara­þoni Íslands­banka sem geri það að verkum að ógilda beri þátt­töku­rétt hans í fram­an­greindu Reykja­vík­ur­mara­þoni. Með vísan til rök­stuðn­ings yfir­dóm­nefndar í nið­ur­stöðu sinni ber því að stað­festa hana. Af þeim sökum er ekki fall­ist á dóm­kröfu kær­anda í mál­inu."

Í grein­ar­gerð sem Íþrótta­banda­lag Reykja­víkur (ÍBR) sendi dóm­stóli ÍSÍ fyrir hönd Reykja­vík­ur­mara­þons og yfir­dóm­nefndar hlaups­ins, segir að fram­kvæmd mara­þons­ins heyri undir reglur Alþjóða frjáls­í­þrótta­sam­bands­ins (IAAF) um fram­kvæmd götu­hlaupa, og ÍBR líti svo á að þær reglur séu æðri reglum Reykja­vík­ur­mara­þons­ins. Í íslenskri þýð­ingu Frjáls­í­þrótta­sam­bands Íslands á reglum IAAF um almennar keppn­is­reglur er enska orðið "pacing" þýtt sem að "leiða." Reyndir hlauparar sem Kjarninn bar þýð­ing­una undir, eru sam­mála um að rétt þýð­ing orðs­ins "pacing" sé "hraða­stjórnun."

Í nið­ur­lagi áfrýj­un­ar­bréfs Péturs Sturlu til áfrýj­un­ar­dóm­stóls ÍSÍ segir: "Í þeim athuga­semdum sem frá mér fylgdu til Dómstóls ÍSÍ og ég geri hér með að athuga­semdum mínum til Áfrýj­un­ar­dóm­stóls ÍSÍ þótti mér óþarft að taka það fram að það ómerkir auð­vitað alla dóms­með­ferð ef í dóm­nefnd eða/og dóm­stóli eru ein­stak­lingar sem eru sam­starfs­menn, þiggj­endur, veit­endur, skyld­menni, vensla­fólk eða vinir og kunn­ingjar þeirra feðga sem eru aðilar að mál­inu."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár